Börn flýja ofbeldi og fátækt inn í óskir um betra líf

Ljósmyndasýningin Óskir íslenskra barna opnar í borgarbókasafninu Gerðubergi laugardaginn 12. september klukkan 14. Sýningin er gjöf Barnaheilla – Save the Children á Íslandi og Ástu Kristjánsdóttur ljósmyndara til barna á Íslandi í tilefni af 25 ára afmæli samtakanna og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. 

harður copyLjósmyndasýningin Óskir íslenskra barna opnar í borgarbókasafninu Gerðubergi laugardaginn 12. september klukkan 14. Sýningin er gjöf Barnaheilla – Save the Children á Íslandi og Ástu Kristjánsdóttur ljósmyndara til barna á Íslandi í tilefni af 25 ára afmæli samtakanna og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. 

Inntak sýningarinnar byggir á sönnum reynslusögum barna sem hafa upplifað ofbeldi, vanrækslu, einelti eða hafa búið við fátækt. Myndirnar sýna ímyndaðar óskir þessara sömu barna. Þannig er áhersla lögð á að börn sem upplifa áföll og erfiðleika fái að eiga sér ósk og von um að líða einhvern tímann betur.

Ljósmyndirnar eru með viðeigandi texta úr Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna til að minna á réttindi barna. Steinunn Hauksdóttir sá um uppsetningu, búninga og gerð óskatrés þar sem hægt er að koma fyrir óskum barna eða hengja þær á greinar óskatrésins.  

Foreldrar eru hvattir til að aðstoða börnin við að skoða sýninguna út frá réttindum þeirra og að skrifa óskir sínar í framhaldi af því á miða.

Ljósmyndari myndanna á sýningunni er Ásta Kristjánsdóttir. Hún á langan feril að baki og starfar í dag sem ljósmyndari í Reykjavík. Í myndum sínum leitast Ásta gjarnan við að senda skilaboð til áhorfandans sem endurspegla sýn hennar á samfélagið. 

Öll börn eiga rétt á vernd gegn ofbeldi og þau eiga rétt á að njóta umönnunar. Ef þú veist um barn sem býr við ofbeldi, vanrækslu eða verulegan skort á nauðsynjum skaltu tilkynna það til barnaverndar eða í 112.

Einnig eru upplýsingar inni á www.verndumborn.is.

Öll vinna við sýninguna var unnin í sjálfboðastarfi.

Sýningin stendur til 10. janúar 2016.