Er geðheilbrigði forréttindi?

Næsti fræðslufundur Náum áttum hópsins verður haldinn á Grand hótel Reykjavík miðvikudaginn 27. janúar kl. 8:15 - 10:00.

N8jan16Næsti fræðslufundur Náum áttum hópsins verður haldinn á Grand hótel Reykjavík miðvikudaginn 27. janúar kl. 8:15 - 10:00.

Að þessu sinni er umfjöllunarefnið "Er geðheilbrigði forréttindi?" þar sem fjallað verður um áhrif umönnunar fyrsta 1001 dag í lífi hvers barns á lífsgæði og  geðheilsu ævina á enda. Frummælendur eru þau Anna María Jónsdóttir geðlæknir, Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskylduráðgjafi og dr. Sigrún Júlíusdóttir prófessor við Háskóla Íslands. Fundarstjóri er Steinunn Bergmann félagsráðgjafi hjá Barnaverndarstofu. 

Skráning er á www.naumattum.is