Fötin og sálin urðu óhrein

mjrÍ dag, 8. nóvember, er baráttudagur gegn einelti. Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnisstjóri hjá Barnaheillum - Save the Children á Íslandi ritaði af því tilefni greinina sem hér fylgir. Hún birtist einnig á visir.is

Í dag, 8. nóvember, er baráttudagur gegn einelti. Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnisstjóri hjá Barnaheillum - Save the Children á Íslandi ritaði af því tilefni greinina sem hér fylgir. Hún birtist einnig á visir.is

Fötin og sálin urðu óhrein

mjrLítil stúlka gengur í skólann með nýju skólatöskuna sína og í nýju úlpunni. Hún er svo glöð. Pabbi hennar hafði keypt þetta í útlöndum. Pabbi var svo góður og mamma líka.

En gleðin hverfur á augabragði. Úr skúmaskotum þeytast einhverjir, hrinda henni, henda töskunni hennar undir bíl, hún verður óhrein, bæði fötin og sálin. Þetta er í minningu hennar fyrsta atvikið af mörgum í eineltissögunni.

Árum saman mátti hún þola aðför, augngotur, útilokun og vinaleysi. Fleiri og fleiri tóku þátt í eineltinu. Hún vissi eiginlega aldrei af hverju. Smátt og smátt brotnaði sál hennar og sjálfstraustið hvarf. Hún varð smátt og smátt viss um að hún væri minna virði og ómerkilegri en aðrir. Fullorðinsár hennar hafa farið í að reyna að byggja upp sjálfstraustið og öðlast trú og traust á annað fólk. Sú leið var stundum þyrnum stráð. Stundum hittir hún einhvern sem tók þátt í eineltinu og hún á enn erfitt með að fyrirgefa.

Í bernsku litlu stúlkunnar var ekki til neitt sem hét einelti og enginn vissi hvernig átti að bregðast við. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá. Margar rannsóknir hafa verið gerðar á einelti, skólar eru með eineltisáætlanir og almenningur er meðvitaður um að einelti á aldrei að líðast, því einelti er ofbeldi. Samt sem áður er einelti enn til staðar í skólum, á vinnustöðum og víðar.

Á Degi gegn einelti, 8. nóvember, skulum við taka höndum saman og strengja þess heit öll sem eitt að leggja ekki aðra í einelti, að skipta okkur af og stöðva einelti, að hjálpa þeim sem hafa verið lagðir í einelti og síðast en ekki síst að stuðla að jákvæðum samskiptum og kærleika manna á meðal. Leyfum fjölbreytni mannslífsins að njóta sín.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi berjast fyrir rétti barna til verndar gegn hverskyns ofbeldi, þ.m.t. einelti. Á vefsíðunum, verndumborn.is og heyrumst.is, geta börn fengið fræðslu og upplýsingar um einelti og það hvert þau eigi að snúa sér.

Það er að segja af litlu stúlkunni að hún hefur spjarað sig vel. Það er ekki síst að þakka þeim góða grunni sem hún hafði úr foreldrahúsum og þeim góðu vinum sem hún eignaðist síðar á ævinni.

Margrét J&uac