Gerast talsmenn barna á afmæli Barnasáttmálans

Afmælishátíð í tilefni 25 ára afmælis Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna fór fram í Laugalækjarskóla nú í morgun.

afmaeli1Afmælishátíð í tilefni 25 ára afmælis Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna fór fram í Laugalækjarskóla nú í morgun.

Dagurinn hófst á því að ráðherrar, þingmenn og nemendur Laugalækjarskóla borðuðu morgunhafragrautinn saman en að því loknu setti innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir, hátíðina og lýsti afmælisár sáttmálans formlega hafið. Sérstök afmælisnefnd hefur undirbúið viðburði sem muna dreifast yfir árið. Þar má nefna gerð sjónvarpsmyndar, málþing og fleira.

,,Við vildum setja afmælisathöfnina inn í umhverfi barnanna, í anda Barnasáttmálans og leggja þannig áherslu á að samfélagið aðlagi sig börnum og þeirra umhverfi, en gerum ekki ráð fyrir að börnin séu sett í umhverfi hinna fullorðnu,” segir Þóra Jónsdóttir, verkefnastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi sem hefur ásamt UNICEF og umboðsmanni barna skipulagt afmælishátíð Barnasáttmálans.

IllugiFramkvæmdastjórar Barnaheilla, UNICEF á Íslandi, innanríkisráðherra og umboðsmaður barna fóru því næst fyrir fjöldasöng þar sem afmælissöngur Barnasáttmálans var sunginn við undirleik Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra.

 

Sjá málin með augum barna

Talsmenn barna á Alþingi minniÁ afmælishátíðinni undirritaði sérstakur hópur þingmanna yfirlýsingu um að gerast „Talsmenn barna á Alþingi“. Hópinn skipa þingmenn úr öllum flokkum sem hafa setið námskeið á vegum UNICEF, Barnaheilla og Umboðsmanns barna um Barnasáttmálann og notkun hans sem hagnýts verkfæris við ákvarðanatöku og stefnumótun. Þingmannahópinn skipa þau Elín Hirst (D), Karl Garðarsson (B), Valgerður Bjarnadóttir (S), Páll Valur Björnsson (A), Birgitta Jónsdóttir (Þ) og

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (V). Við undirritunina settu þingmennirnir upp sérstök „barnagleraugu“ til að muna eftir að líta á málin frá sjónarhorni barna.

„Ég er stolt af því að tilheyra þessum hópi og mun framvegis setja upp barnagleraugun við úrvinnslu mála sem snerta börn og velferð þeirra,“ sagði Elín Hirst.

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata tók í sama streng og beindi orðum sínum til barnanna á staðnum.
„Þegar við