Helmingur allra barna sem þarf á mannúðaraðstoð að halda, eða um 60 milljónir barna, býr í átta löndum.

11 mánaða gamla Haifa þjáist af mikilli vannæringu. Hún vegur 2,7 kg en hún ætti að vera um 6,4 kg. …
11 mánaða gamla Haifa þjáist af mikilli vannæringu. Hún vegur 2,7 kg en hún ætti að vera um 6,4 kg. Hér er hún í meðferð á spítala í Jemen sem er studdur af Barnaheillum - Save the Children

Misskipting heimsins er mikil. Alls þurfa 117 milljónir barna í heiminum á mannúðaraðstoð að halda til að lifa af árið 2021, en helmingur þessara barna býr í einungis átta löndum. Barnaheill - Save the Children kalla eftir tafarlausum alþjóðlegum viðbrögðum til að tryggja að heimsfaraldurinn hafi ekki varanleg áhrif á heila kynslóð um ókomin ár.

Mikið bakslag hefur orðið í þróunarsamvinnu vegna Covid-19. Áratuga framfarir eru komnar aftur á byrjunarreit. Áhrif Covid-19 á þróunarlönd eru ekki einungis af heilsufarslegum toga heldur eru fátækustu ríki heims að verða fyrir miklum efnahags- og félagslegum áhrifum. Foreldrar hafa misst vinnuna, matvælaóöryggi hefur aukist í kjölfar hækkandi verðbólgu og efnahagskreppu, börn hafa þurft að hætta í skóla, barnahjónaböndum hefur fjölgað, barnaþrælkun aukist og ofbeldi á börnum orðið tíðara, svo eitthvað sé nefnt.

Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum munu um 235 milljónir manna - þar af helmingur börn - þurfa á einhvers konar mannúðaraðstoð að halda á þessu ári, það er aukning úr 170 milljónum frá árinu 2020 eða um 40% aukning. Helmingur þessara barna er í átta löndum. Flest börn sem þurfa á mannúðaraðstoð að halda búa í Jemen eða um tæplega 11 milljón börn. Lýðstjórnarlýðveldið Kongó kemur þar á eftir en um 10,2 milljón börn þar í landi þurfa á aðstoð að halda. Barnaheill - Save the Children á Íslandi veita mannúðaraðstoð til barna í þessum löndum auk Sýrlands. Hér má sjá lista yfir þau átta lönd þar sem helmingur allra barna sem þurfa á mannúðaraðstoð að halda býr:

Jemen
Kongó
Eþíópía: 
Afghanistan
Súdan:
Sýrland: 
Pakistan 
Nígería: 

10.935.000  börn
10.192.000 börn
10.011.000  börn
9.700.000 börn
6.164.000 börn
4.680.000 börn
4.305.000 börn
4.250.000 börn

 

Inger Asher, framkvæmdastjóri Save the Children segir nauðsynlegt að mannkynið komi sér saman um að það þurfi að berjast fyrir hverju einasta barni í heiminum.

,,Árið 2021 getur verið betra eða miklu verra en árið 2020 fyrir börn. Það fer algjörlega eftir því hvernig mannkynið ætlar að bregðast við. Við þurfum að koma okkur saman um að við ætlum að bjarga hverju einasta barni í heiminum. Það er engin afsökun fyrir því að milljónir barna séu svöng dag eftir dag, neydd til þess að vinna eða að þau þurfi að hafna rétti sínum til náms.

Við höfum sérstaklega áhyggjur af þeim fjölda barna sem eru í bráðri lífshættu vegna vannæringar. Við getum ekki hunsað viðvörunarmerki um matarskort og hungursneyð í mörgum löndum, þar á meðal í Jemen, Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, Suður-Súdan og í Nígeríu.

Áður en heimsfaraldur skall á stafaði börnum þegar ógn af loftslagsbreytingum, átökum og hungri og hefur nú bæst við enn ein ógnin. Ef við bregðumst ekki strax við eigum við á hættu að missa tugþúsundir barna af fullkomlega fyrirbyggjandi orsökum. Við getum ekki látið það gerast!"

Haifa,11 mánaða stúlka frá Jemen, er ein af fjölmörgum börnum sem þjást af alvarlegri vannæringu. Hún vegur aðeins 2,7 kg, sem er minna en helmingur þeirrar þyngdar sem hún ætti að vera á hennar aldri, eða um 6,4 kg. Fjölskylda hennar lifir á aðeins tveimur máltíðum á dag, te og brauði í morgunmat og kvöldmat. Roqea, móðir Haifu, fór með hana aðeins þriggja mánaða upp á spítala vegna vannæringar.

,,Dóttir mín byrjaði að veikjast þegar hún var þriggja mánaða. Þegar ég fór með hana á spítala sögðu þeir mér að hún væri vannærð. Hún fékk meðferð á spítalanum en henni versnaði stöðugt. Síðan veiktist hún alvarlega. Ég hélt að hún myndi aldrei ná sér. Það eina sem ég vona fyrir framtíðina er að barnið mitt nái sér og geti gengið."

Staða barna í heiminum var slæm fyrir heimsfaraldur en vegna Covid-19 hefur staða barna víðsvegar um heim farið versnandi. Til þess að takast á við þessa ógn hafa Save the Children hrundið af stað neyðaráætlun með fjárhagsáætlun upp á 769 milljónir Bandaríkjadali, til að ná til 15,7 milljóna manna, þar af 9,5 milljónir barna í 37 löndum.

Save the Children vinna hörðum höndum að því að tryggja að börn hafi aðgang að menntun og séu varin gegn ofbeldi á árinu 2021. Samtökin vinna einnig að því að tryggja fjölskyldum fjárhagslegan stuðning og aðstoð við aðgengi að heilbrigðisþjónustu, hreinu vatni og næringarríkum mat. Barnaheill - Save the Children einbeita sér sérstaklega að því að styrkja stúlkur og konur, svo þær hafi jafnan aðgang að stuðningi og þjónustu.