Himnasending

Verkefnið er eins og himnasending til okkar,“ sagði leikskólastjóri einn að loknu námskeiði um Vináttu – forvarnarverkefni Barnaheilla gegn einelti í leikskólum. „Það passar einstaklega vel inn í alla starfsemi og styður vel við önnur verkefni og áætlanir leikskólans.“ Setning sem þessi er ekkert einsdæmi, því starfsmenn Vináttuleikskólanna okkar hafa undantekningarlaust tekið verkefninu fagnandi og strax er farinn að sjást mikill árangur af notkun þess.

Verkefnið er eins og himnasending til okkar,“ sagði leikskólastjóri einn að loknu námskeiði um Vináttu – forvarnarverkefni Barnaheilla gegn einelti í leikskólum. „Það passar einstaklega vel inn í alla starfsemi og styður vel við önnur verkefni og áætlanir leikskólans.“ Setning sem þessi er ekkert einsdæmi, því starfsmenn Vináttuleikskólanna okkar hafa undantekningarlaust tekið verkefninu fagnandi og strax er farinn að sjást mikill árangur af notkun þess.

En hvað er Vinátta? Það var á vormánuðum 2014, sem við starfsmenn Barnaheilla – Save the Children á Íslandi gengum manna á milli með græna tösku. Við höfðum trú á því að í töskunni leyndist lykillinn að lausn eineltismála. Við heimsóttum starfsmenn sveitarfélaga og leikskóla, ráðuneyta og háskóla og kynntum innihald töskunnar. Við vildum álit þeirra á því hvort við ættum að framleiða efnið í töskunni til að bjóða leikskólum á Íslandi til notkunar. Alls staðar var sama viðkvæðið; Þetta er einmitt það sem vantar!

Hér hófst ævintýrið sem ekki sér fyrir endann á; Hafist var handa við að þýða og staðfæra efnið, sem er danskt að uppruna og Vinátta varð til. Á haustmánuðum 2014 var efnið tilbúið og að loknu námskeiði á okkar vegum tóku sex leikskólar í jafnmörgum sveitarfélögum að sér tilraunakennslu í rúmt ár. Í kjölfarið var efnið yfirfarið og gefið út að nýju og öllum leikskólum boðið það til notkunar. Nú eru Vináttuleikskólarnir orðnir 50 talsins og fer stöðugt fjölgandi. Starfsmenn sem sótt hafa námskeið eru á fjórða hundrað. Nokkur sveitarfélög hafa ákveðið að Vinátta fari í alla leikskóla sveitafélagsins, þar sem börnin munu síðar koma saman í grunnskólum og tómstundum og mikilvægt sé að þau séu öll vel nestuð með forvörnum gegn einelti.

Vinátta byggir á nýjustu rannsóknum á einelti og þeirri nálgun að einelti sé samfélagslegt mein en ekki einstaklingsbundið vandamál. Vinna þarf með skólabrag, samskipti og styrkleika barnanna strax í leikskóla og koma í veg fyrir að einelti nái að festa rætur og þrífast. Efnið í töskunni er einstaklega handhægt, auðvelt í notkun og árangursríkt. Allt skólasamfélagið tekur þátt í Vináttu, ekki bara börnin, heldur einnig starfsmenn og foreldrar.
Við hjá Barnaheillum eigum þá von að innan fárra ára muni einelti meðal barna vera hverfandi. Með Vináttu leggjum við lóð á þær vogaskálar.

Næsta námskeið vegna Vináttu verður þann 25. október. Leikskólar sem hafa áhuga á að verða Vináttu- leikskólar geta skráð starfsmenn á námskeið með því að hafa samband við barnaheill@barnaheill.is. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á: http://www.barnaheill.is/vinatta/

 
Margrét Júlía Rafnsdóttir
verkefnastjóri Vináttu hjá Barnaheillum - Save the Children á Íslandi
Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu og á Vísir.is.