Hjólasöfnun Barnaheilla hleypt af stokkunum í níunda sinn í dag

Opnun Hjólasöfnunar Barnaheilla. 
Ljósmynd: Guðmundur Þór Reynisson.
Opnun Hjólasöfnunar Barnaheilla.
Ljósmynd: Guðmundur Þór Reynisson.

Hjólasöfnun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi var hleypt af stokkunum kl. 11 í dag, 30. mars, í Sorpu á Sævarhöfða. Að þessu sinni afhenti félags- og barnamálaráðherra Ásmundur Einar Daðason Elsu Margréti Þórðardóttur, 11 ára nemanda í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði fyrsta hjólið í söfnunina. Fámennt en góðmennt var við opnunina og héldu viðstaddir hæfilegri fjarlægð sín á milli.

Þrátt fyrir óvenjulegar aðstæður þessar vikurnar og mánuðina telja samtökin mikilvægt að viðhalda þessu mikilvæga verkefni og hugsa fram á vorið þegar vonandi sem flest börn og ungmenni munu geta hjólað um á eigin hjólum.

Söfnunin stendur yfir til 1. maí og hefjast úthlutanir á hjólum upp úr miðjum apríl.

Hjólin verða gefin börnum og unglingum sem ekki hafa tök á því að kaupa sér reiðhjól. Hægt verður að sækja um hjól í gegnum félagsþjónustu sveitarfélaga.

Hjólunum verður safnað á endurvinnslustöðvum Sorpu á Dalvegi í Kópavogi, Breiðhellu í Hafnarfirði, Sævarhöfða, Ánanaustum og Jafnarseli í Reykjavík og Blíðubakka í Mosfellsbæ. Sjálfboðaliðar munu gera hjólin upp undir styrkri stjórn sérfræðinga í reiðhjólaviðgerðum áður en þau verða afhent. Verkefnið hefur mjög breiða samfélagslega skírskotun þar sem það eflir þátttöku barna og ungmenna í samfélaginu.

Þetta er í níunda sinn sem hjólasöfnunin fer fram en hún er unnin í samstarfi við Æskuna barnahreyfingu IOGT, Sorpu og ýmsa aðra velunnara.

Rúmlega 2000 börn hafa notið góðs af hjólasöfnun Barnaheilla frá því að hún var haldin fyrst árið 2012.

Hægt er að fylgjast með verkefninu á Facebook síðu söfnunarinnar og einnig er hægt að skrá sig þar til þátttöku í sjálfboðaliðastarf fyrir hjólaviðgerðir.

Nánari upplýsingar veitir Linda Hrönn Þórisdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi, linda@barnaheill.is, í síma 821 8758