Hundruð barna fylgdarlaus eftir skyndilegt eldgos í Kongó

Tugþúsundum manna hefur verið skipað að yfirgefa heimili sín í Goma héraði í lýðstjórnarlýðveldinu Kongó eftir að eldgos hófst skyndilega í Nyiragongofjalli nærri byggð þann 22. maí síðastliðinn. Í óreiðunni og jarðskjálftunum sem hafa fylgt eldgosinu hafa 939 börn orðið viðskila frá fjölskyldum sínum en Barnaheill – Save the Children í Kongó hafa aðstoðað 696 börn að hafa uppi á foreldrum sínum. Enn eru að minnsta kosti 250 börn fylgdarlaus og vinna Barnaheill í Kongó hörðum höndum að því að verða upp á fjölskyldum þeirra. Flest barnanna dvelja í tímabundnu fjölskylduhúsnæði á vegum samtakanna.

Eldgosið hófst mjög skyndilega og flæddi hraun inn í byggð í Goma og eyðilagði um það bil þúsund heimili, sex skóla og aðra mikilvæga innviði eins og orkustöðvar og vatnsveitur fyrir hundruði þúsunda manna.

Tresor (11 ára) og Hortensia (5 ára), búa í Turunga ásamt fjölskyldu sinni og voru foreldrar þeirra við vinnu á markaðinum þegar eldgosið hófst. Þegar foreldrarnir komu heim höfðu börnin flúið. Þeir leituðu að Tresor og Hortensiu á spítalanum, líkhúsinu og í fangelsinu. „Við vorum svo hrædd,“ segir Bahati faðir barnanna. „Þetta var mikið áfall. Við vorum örugg en við vissum ekkert um aðstæður barnanna okkar.“

„Það var maður að keyra í gegnum hverfið þegar eldgosið hófst og bauð fólki far út úr hverfinu. Ég þáði farið og tók systur mína með,“ sagði Trevor.

Trevor og Hortensia ferðuðust langa leið, til bæjarins Sake. „Við héldum að allir í þorpinu okkar myndu deyja. Ég er mjög þreyttur.“

Edouard Niyonzima, starfsmaður Barnaheilla – Save the Children í Goma segir ástandið vera hræðilegt í Goma.

Við sjáum hvernig aðstæður í Goma hafa farið versnandi á örfáum dögum. Jarðskjálftar eru mjög tíðir ennþá og heimili halda áfram að eyðileggjast ásamt skólum og öðrum innviðum. Hálf milljón manns eru án vatns, sem eykur hættuna á útbreiðslu kóleru. Þetta er algjör hörmung og bætir ekki ástandið sem hér er fyrir. Kongó hýsir mesta fjölda flóttafólks í allri Afríku, þar sem 5,2 milljónir manna er á vergangi. Eldgosið setur enn meiri þunga á aðgerðar- og fjáhagsáætlanir stjórnvalda.
Við erum að rekast á fylgdarlaus börn út um allt. Börn eiga á hættu að verða fyrir ofbeldi og misnotkun ef þau eru ekki tekin úr þessum aðstæðum. Einnig er nauðsynlegt að þau fái áfallahjálp, en þetta er mikið áfall fyrir börn að upplifa, að missa heimili, skóla og jafnvel fjölskyldumeðlim.

Amavi Akpamagbo, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children í Kongó segir gríðarlega mikilvægt að stuðla að sálrænni heilsu barna á svæðinu.

Okkar megináhersla er að vernda öll börn. Það felst fyrst og fremst í að hjálpa börnum að finna fjölskyldur sínar og tryggja að þau séu örugg á meðan þau eru ein. Sálrænn stuðningur er lykilatriði og leggjum við mikla áherslu á að veita börnum og fjölskyldum þeirra áfallahjálp.

Barnaheill hafa starfað í Kongó í 25 ár, þar á meðal í Goma. Samtökin vinna þar náið með öðrum félagasamtökum og stjórnvöldum á svæðinu. Frá því á síðasta ári hafa Barnaheill – Save the Children á Íslandi veitt mannúðaraðstoð í Kongó, í Suður-Kivu sem er héraðið sunnan við Goma. Verkefni Barnaheilla miðar að því́ að styðja við barnvæn svæði og samfélagslega leidda barnavernd og bjargráð.

 

 

 

 

 

Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru hluti af alþjóðasamtökunum Save the Children sem vinna að réttindum og velferð barna með barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. Barnaheill eru leiðandi afl í að breyta viðhorfum og verklagi varðandi málefni barna. Framtíðarsýn Barnaheilla er heimur þar sem sérhvert barn hefur tækifæri til að lifa og þroskast, fær gæðamenntun, lifir öruggu lífi og hefur tækifæri til að hafa áhrif.
Við stöndum vaktina í þágu barna og gætum réttinda þeirra.