IKEA safnaði tæplega 300.000 krónum til verkefna Barnaheilla

Barnaheill og IKEA þakka öllum þeim sem með kaupum sínum á mjúkdýri, tóku þátt í að styðja starf í þágu barna hér á landi. Alls söfnuðust 285.400 krónur á tímabilinu 1.-24. desember. Upphæðin rennur óskipt til Barnaheilla og mun fara til innlendra verkefna samtakanna, s.s. barnaverndar og forvarnastarfs auk verkefnisins „Stöðvum barnaklám á Netinu" sem samtökin veita forstöðu og styrkt er að hluta af Evrópusambandinu. Barnaheill eru einnig að fara af stað með verkefni í þágu barna innflytjenda.
Alþjóðasamtök Barnaheilla, Save the Children, og IKEA hafa um nokkurra ára skeið starfað saman í þágu barna víða um heim og þakka Barnaheill IKEA á Íslandi fyrir þennan frábæra stuðning.