Meira en 21.000 manns drepin í átökum síðan í mars

Að minnsta kosti 21.347 manns hafa verið látið lífið í átökum, þar á meðal 5.800 óbreyttir borgarar og börn, frá því að öryggisráð Sameinuðu þjóðannakallaði eftir alþjóðlegu vopnahléi  fyrir meira en 90 dögum, í kjölfar Covid-19 heimsfaraldurs. Alþjóðlegt vopnahlé myndi gera löndum og mannúðarsamtökum auðveldara fyrir að einbeita sér að baráttunni gegn Covid-19, en vegna áframhaldandi átaka hefur milljónum verið ýtt í enn frekari fátækt og hungursneyð í kjölfar Covid-19.

Hjálparsamtök hvetja þjóðhöfðingja, sem funda í dag í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í New York, til að endurnýja neyðarkall sitt um alþjóðlegt vopnahlé. Nauðsynlegt er að flýta fyrir viðbragðsgetu hjálparsamtaka og auka aðgengi þeirra að átakasvæðum þar sem mikil neyð ríkir í kjölfar heimsfaraldurs.

Sameinuðu þjóðirnar sendu frá sér ákall um vopnahlé í mars síðastliðnum, þegar kórónuveirufaraldurinn var farinn að breiðast hratt út - en án árangurs. Víðsvegar um heim hafa átök aukist síðustu mánuði og í síðustu viku ítrekuðu Sameinuðu þjóðirnar ákallið. Vegna efnahagslegra áhrifa Covid-19 á fæðuöryggi í heiminum hafa átök aukist og er talið að 110 milljón barna muni bætast við þau börn sem nú þegar búa við hungursneyð. Sérstaklega er staðan slæm í löndum eins og Kongó, Jemen, Suður-Súdan og norð-austur Nígeríu þar sem mikið neyðarástand ríkir.

Barnaheill – Save the Children hafa tekist á við mjög krefjandi hindranir í Jemen, þar sem erfitt er að ná til þeirra sem eru í mestri neyð. Óbreyttir borgarar eru áfram fórnarlömb loftárása og gríðarleg hungursneyð ríkir í landinu. Barnaheill hafa einnig unnið hörðum höndum að því að aðstoða börn og fjölskyldur þeirra í Kongó, en starfsmenn hafa átt undir högg að sækja að undanförnu þar sem átök hafa aukist gífurlega í landinu. Þar deyja börn úr hungri, farsóttum sem hægt er að koma í veg og átökum, en fjöldi barna hefur verið myrtur á þessu ári af árásarmönnum.

Inger Ashing, framkvæmdastjóri alþjóðasamtaka Barnaheilla – Save the Children segir tímann til að bregðast við vera að renna frá okkur.

Áhrifa kórónuveirufaraldursins er farið að gæta víða og hungursneyð er að aukast víðsvegar um heim. Það er engin tilviljun að mörg þeirra ríkja sem glíma hvað mest við hungursneyð eru þau lönd sem eiga í átökum. Og það er of oft sem börn þurfa að líða mest fyrir það. Börn þurfa meira öryggi og meiri vernd. Covid-19 hefur nú þegar haft slæm áhrif á líf barna og takmarkað aðgang þeirra að læknisþjónustu, mat, menntun og vernd. Ef við komum á 90 daga vopnahléi, þá mun það hafa raunveruleg jákvæð áhrif á líf barna til framtíðar.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi, ásamt fleiri hjálparsamtökum úti um allan heim skora á meðlimi öryggisráðsins og alþjóðasamfélagið allt að:

  • Grípa til brýnna aðgerða til þess að stöðva átök á heimsvísu og koma á algjöru vopnahléi í lágmark 90 daga.
  • Stuðla að skjótum viðbrögðum vegna áhrifa Covid-19 á átakasvæðum. Tryggja að mannúðaraðstoð skili sér til þeirra sem eru í mestri neyð og að aðstoðin sé fjármögnuð eins og þörf er á.
  • Tryggja aðgengi þeirra sem veita mannúðaraðstoð með því að stuðla að samvinnu á landsvísu. Einnig er lögð áhersla á að tryggja öryggi þeirra sem vinna við mannúðaraðstoð og heilbrigðisstarfsmanna, sem og viðurkenna neikvæð áhrif sem heimsfaraldurinn hefur á konur, börn, eldra fólk, einstaklinga með fötlun, flóttamenn og innflytjendur.

Undirritað af: Barnaheillum - Save the Children, International Rescue Committee, World Vision International, Oxfam America, CARE International, Action Against Hunger, Humanity and Inclusion (Handicap International), Hope Restoration South Sudan, Mwatana Organisation for Human Rights, Progressive Voice