N1 er maí-hlekkur Heillakeðju barnanna

N1 er hlekkur í Heillakeðju barnanna í maímánuði. Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru í samstarfi við tólf íslensk fyrirtæki í ár sem mynda keðju stuðningsaðila og taka að sér einn mánuð til stuðnings samtökunum. N1 leggur verkefninu lið með því að láta allan ágóða af 0,5l VOT vatni sem selt er í mánuðinum renna til samtakanna. Starfsfólk leggur einnig sitt af mörkum með því að mynda Heillakeðju á áheitavefnum heillakedjan.is.

N1 er hlekkur Heillakeðju barnanna í maímánuði. Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru í samstarfi við tólf íslensk fyrirtæki í ár sem mynda keðju stuðningsaðila og taka að sér einn mánuð til stuðnings samtökunum. N1 leggur verkefninu lið með því að láta allan ágóða af 0,5l VOT vatni sem selt er í mánuðinum renna til samtakanna. Kælarnir með vatninu eru sérmerktir en fyrirtækið efnir til söluátaks á drykknum. Starfsfólk leggur einnig sitt af mörkum með því að mynda Heillakeðju á áheitavefnum heillakedjan.is.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru í samstarfi við tólf íslensk fyrirtæki í ár sem mynda keðju stuðningsaðila og taka að sér einn mánuð til stuðnings samtökunum. N1 er hlekkur keðjunnar í maímánuði og leggur verkefninu lið með því að láta allan ágóða af 0,5l VOT vatni sem selt er í mánuðinum renna til samtakanna. Kælarnir með vatninu eru sérmerktir en fyrirtækið efnir til söluátaks á drykknum. Starfsfólk leggur einnig sitt af mörkum með því að mynda Heillakeðju á áheitavef samtakanna heillakedjan.is.

Markmiðið með Heillakeðju barnanna er að standa vörð um og vekja athygli á réttindum barna sem tíunduð eru í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og safna fé til styrktar verkefna í þágu barna á vegum Barnaheilla. Sjaldan hefur verið brýnna en nú að standa vörð um málefni þeirra. Í hverjum mánuði er valið eitt þema úr barnasáttmálanum. Í maí er það 31. greinin sem fjallar um rétt til hvíldar og tómstunda.

Samtökin hafa frá stofnun lagt áherslu á starf innanlands og eru helstu áherslur á að standa vörð um réttindi barna, baráttu gegn ofbeldi á börnum, heilbrigðismál og að rödd barna heyrist betur í íslensku samfélagi.

Þátttaka N1 í Heillakeðjunni er hlekkur í samfélagslegri ábyrgð fyrirtækisins. Starfsfólk N1 vill einnig leggja sitt beint af mörkum með áheitum á áheitavefnum heillakedjan.is.

Tíu fyrirtæki hafa nú þegar ákveðið að taka þátt í Heillakeðju barnanna. Þau eru;  Blómaval, Ölgerðin, Lýsi, VÍS, N1, Háskólabíó og Smárabíó, Síminn, Aðföng, Icepharma og Eymundsson. Með þátttöku í Heillakeðjunni hafa öll þessi fyrirtæki skuldbundið sig til að leggja verkefnum samtakanna lið. Hvert þeirra mun fara ólíkar leiðir í sínum mánuði en hægt verður að fylgjast með því sem í boði verður á heimasíðu fyrirtækjanna og á facebook-síðu Heillakeðjunnar.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi leggja áherslu á það hérlendis að standa vörð um réttindi barn