Nýr vefur um var Barnasáttmálann opnaður á degi mannréttinda barna

Á degi mannréttinda barna þann 20. nóvember, var nýr fræðsluvefur um Barnasáttmálann opnaður. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra opnuðu vefinn formlega á Zoom-fundi. Nemendum, kennurum og öðrum áhugasömum fylgdust með fundinum.

Á hinum endurnýjaða vef, www.barnasattmali.is, er að finna fræðslu um mannréttindi barna. Margt nýtt og spennandi er á vefnum sem auðveldar fræðslu um þau. Þar er Barnasáttmálinn birtur með barnvænum texta, hann er táknmálstúlkaður og á vefnum er vefþula sem hentar blindum og sjónskertum. Hann hefur jafnframt að geyma heildartexta Barnasáttmálans og Barnasáttmálann á mörgum tungumálum. Vefurinn er að hluta til þýddur á ensku og pólsku og er það gert til að höfða til foreldra barna á Íslandi með annað móðurmál en íslensku.

Enn fremur eru á vefnum upplýsingar fyrir börn um hvert þau geti leitað ef þau þurfa hjálp.

Síðast en ekki síst eru fjöldamörg verkefni til að nýta í kennslu um mannréttindi barna og skiptast þau í aldursflokka, fyrir 6-9 ára, 10-12 ára og 13-18 ára börn.

Hinn nýi Barnasáttmálavefur var samstarfsverkefni Barnaheilla - Save the Children á Íslandi, sem fór með verkefnastjórn, UNICEF á Íslandi og Umboðsmanns barna í samstarfi við Menntamálastofnun. Verkefnið var styrkt af ríkisstjórn Íslands, að tillögu frá forsætisráðuneytinu og mennta- og menningarmálaráðuneytinu og er vefurinn ætlaður til notkunar fyrir börn á öllum aldri.