Öll börn eru mikilvæg - morgunverðarfundur

Seinni morgunverðarfundur í tilefni af lögfestingu barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna á Íslandi verður haldinn á Grand hótel miðvikudaginn 20. nóvember kl. 8.15-10.30.  20. nóvember 2013 er afmælisdagur Barnasáttmálans en þá verða 24 ár liðin frá því að hann var samþykktur af Sameinuðu þjóðunum.

Dagskrá:
• Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra: Ávarp
• Margrét Júlía Rafnsdóttir, Barnaheill- Save the Children á Íslandi: Námsvefurinn www.barnasattmali.is
• Eyrún María Rúnarsdóttir doktorsnemi og stundakennari: Pólskt, víetnamskt, danskt eða íslenskt ungmenni á Íslandi? Hvernig líður þeim?
• Ingi B. Poulsen umboðsmaður borgarbúa: Umfjöllun um bann við mismunun, jafnræðisreglan, leiðbeiningarskyldan og staða barna almennt
• Áslaug Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar og framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar: Innleiðing Barnasáttmálans í Garðabæ
• María Rún Gunnarsdóttir, innanríkisráðuneytið: Ísland og Barnasáttmálinn
• Pallborðsumræður
• Fundarstjóri: Stefán I. Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi

Allir velkomnir. Húsið opnar 7:50, og fundur hefst stundvíslega 8.15. Kostnaður kr. 2300, morgunverður innifalinn. Greiða þarf við innganginn. Vinsamlegast skráið þátttöku á netfangið: womeniniceland@womeniniceland.is

Morgunverðarfundurinn er seinni fundurinn af tveimur sem haldnir eru í tilefni af lögfestingu Barnasáttmálans á Íslandi.  Að fundunum standa Teymi um málefni innflytjenda, umboðsmaður barna, Barnaheill - Save the Children á Íslandi, UNICEF á Íslandi, Námsgagnastofnun, Reykjavíkurborg, Samtökin Móðurmál og Samtök kvenna af erlendum uppruna.