Orðsending til jólasveina og foreldra

Nú nálgast jólin og jólasveinar fara að gera sig tilbúna til bæjarferða með ýmislegt spennandi í pokahorninu í skóinn fyrir börnin. Við Íslendingar látum okkur ekki nægja einn jólasvein eins og flestar þjóðir gera, heldur þrettán sem koma einn af öðrum. Það hljóta að fylgja þessu gjafastússi mikil útgjöld á jólasveinaheimilinu, því svo virðist sem að jólasveinarnir séu hættir að búa gjafirnar til sjálfir. Þeir hafa líklega ekki kynnt sér barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, a.m.k ekki 2. grein sáttmálans, því stundum mismuna þeir börnum. Meðan sum þeirra fá mandarínu í skóinn sinn, eða jafnvel ekkert, fá önnur rándýr leikföng eða tæki. Ungur maður trúði mér fyrir því að hann hefði eitt sinn verið að leik með vini sínum allan daginn og þeir báðir hegðað sér óskaplega vel, en næsta dag kom í ljós að sveinki hafði mismunað þeim all verulega. Honum sárnaði út í jólasveininn.

Kæru jólasveinar mig langar að biðja ykkur að hætta að mismuna börnum. Mig langar líka að segja ykkur að börn tala saman og bera sig saman hvert við annað. Mig langar líka að benda ykkur á að þó ykkur langi að gefa sumum börnum dýra og flotta hluti, þá er óþarfi að íþyngja litlum skóm með stórum gjöfum.

Mig langar að benda starfsfólki skóla á að hægt er að semja við jólasveininn um svipaðar gjafir fyrir þau börn sem eru saman á deild eða í bekk.

Svo er það dálítið sérstakt, að það virðast vera sömu börnin sem fá stóru og dýru jólagjafirnar frá foreldrum sínum og fengu þessar stóru Í skóinn.

Við viljum öll gera börnunum okkar vel og þó við höfum efni á því að gefa stórar gjafir, þá er það ekki stærðin og verðmiðinn sem skiptir öllu máli. Við berum ábyrgð á því að kenna börnunum að meta þær gjafir sem þau fá og eitt besta veganesti sem við gefum þeim út í lífið er að þau þurfi að hafa eilítið fyrir hlutunum. Að gefa of mikið of snemma er ekki endilega það sem barni er fyrir bestu, ekki endilega það sem stuðlar að þroska og seiglu barnsins. Ofgnótt af efnislegum gæðum er ekki það sem börn þurfa. Ofgnóttin er einnig skuld til framtíðar, við jörðina sem börnin eiga að erfa.

Munum líka að börnin okkar eru í samfélagi annarra barna. Þarna úti eru börn sem fá litlar, eða jafnvel engar jólagjafir. Þetta eru líklega sömu börnin og fengu lítið sem ekkert frá jólasveinunum. Hugsum til þessara barna og gaukum einhverju að þeim. Hugsum líka til Barnaheilla - Save the Children á Íslandi, sem vinna að málefnum barna sem búa við fátækt á Íslandi og barna sem búa við sárafátækt í öðrum heimshlutum. Í alsnægtinni er gott að vita að hægt er að gefa þeim sem ekkert eiga. Barnaheill styðja við börn í neyð Sýrlandi, Jemen og Lýðveldinu Kongó  og með því að kaupa Heillagjöf á heillagjafir.is styður þú við þessi börn. 

Barnaheill - Save the Children á Íslandi hafa Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi í öllu starfi samtakanna. Öll börn eiga að njóta þeirra réttinda sem kveðið er á um í Barnasáttmálanum og ekki má mismuna þeim sökum stöðu þeirra eða foreldra þeirra. Það er samfélagsleg ábyrgð okkar að sjá til þess að öll börn geti lifað með reisn.

Hjálpumst að við að gera öllum börnum aðventuna og jólin ánægjuleg. 

Margrét Júlía Rafnsdóttir

Verkefnastjóri innlendra og Evrópuverkefna hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi