Sumarhátíðir - sýnum ábyrgð!

Miðvikudaginn 23. maí nk heldur Náum áttum, fræðslu- og forvarnahópur, síðasta fund vetrarins á Grand hótel kl. 08.15-10.00 en Barnaheill - Save the Children á Íslandi eiga aðild að hópnum. Fjallað verður um sumarhátíðir á Íslandi, framkvæmd þeirra og ábyrgðina sem fylgir hátíðarhaldi eins og þjóðhátíð, bæjarhátíð, útihátíð eða hestamóti.

Fyrirlesarar verða þrír; Eyrún Jónsdóttir frá neyðarmóttökunni fjallar um fórnarkostnaðinn, Rúnar Halldórsson félagsráðgjafi ræðir um útihátíðir á Suðurlandi og viðbúnað sveitarfélaga og Tómas Guðmundsson frá Akranesstofu fjallar um hátíðina „Írskir dagar“ sem haldnir eru á Akranesi.

Að loknum erindum verða pallborðsumræður. Þá sitja fyrir svörum ásamt fyrirlesurum, Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, Ómar Bragi Stefánsson frá UMFÍ, Sveinbjörn Kristjánsson frá SAMAN hópnum og Finnur Guðmundarson Olguson, fulltrúi 100 karla hópsins.

Fundurinn er öllum opinn en þátttökugjald er kr.1500. Morgunverður fylgir og verður afgreiddur frá kl. 08.15. Fundarstjóri verður Sölvi Tryggvason, fjölmiðlamaður.