Tabú sem allir þyrftu að þekkja

Samfélag manna virkar að langmestu leyti vel og er langflestum okkar gott. Það er frábært og við ættum að muna oftar eftir að þakka fyrir það. Það gerist ekki endilega af sjálfu sér, því það er verkefni okkar allra að vanda okkur í lífinu og koma ávallt vel fram við aðra, sérstaklega við börn. Við þurfum að vera meðvituð og breyta rétt, sama hvernig á stendur í lífi okkar, þó mikilvægast af öllu sé að halda í gleðina og njóta þess að vera til.

Það er gott að vera meðvituð um að það lifa ekki allir jafngóðu lífi. Þar sem við sitjum við netvafrið í okkar daglega lífi, mismeðvituð um það sem við lesum eða sjáum, gætum við hnotið um ýmislegt sem getur virkað mjög óþægilegt fyrir okkur, er jafnvel annaðhvort óviðeigandi eða ólöglegt. Það gæti jafnvel verið efni þar sem ofbeldi kemur við sögu. Eða efni þar sem hvatt er til ofbeldis eða að verið sé að breiða út hatur.

Þetta gæti enn fremur verið efni sem viðkemur slæmri meðferð á börnum. Um getur verið að ræða kynferðisofbeldi gegn barni. Slíkt efni er gróft brot á mannréttindum viðkomandi barns. Verði fólk vart við slíkt efni á neti er um að gera að hjálpa til við að stuðla að því að svoleiðis efni verði tekið af netinu – og jafnvel að barninu verði komið til hjálpar ef tekst að rekja myndefnið til þess sem sætir meðferðinni.

Það er vandmeðfarið að uppfræða almenning um kynferðisofbeldi gegn börnum á netinu. Sumir segja að við það að upplýsa um það, leggist einhverjir í leit að því sérstaklega, sem er ólöglegt. Það er samt mikilvægt að upplýsa rétta aðila um efni á netinu sem varðar á einhvern hátt ofbeldi gegn barni eða börnum. Okkur ber öllum að tilkynna um slíkt efni, hvaðan svo sem efnið er upprunnið og hvort sem um er að ræða stór eða lítil börn, erlend eða íslensk. Hvert barn skiptir máli og á rétt á vernd gegn ofbeldi samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Allir sem eru yngri en 18 ára teljast börn á grundvelli Barnasáttmálans.

Ábendingarhnappur
Á vefsíðu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi er að finna ábendingarhnapp sem hægt er að nota til að tilkynna um ólöglegt og/eða óviðeigandi efni á neti. Ábendingarlínan er samstarfsverkefni Barnaheilla og Ríkislögreglustjóra og hún er hluti af SAFT-verkefninu um örugga og jákvæða tölvu- og nýmiðlanotkun barna og unglinga á Íslandi.
Ábendingarlínan er hluti af stóru alþjóðlegu neti ábendingarlína sem vinna saman að því að uppræta efni sem hefur að ge