Þingmenn gerast talsmenn barna á Alþingi

Nýir talsmenn barna á Alþingi ásamt fulltrúum ungmennaráða Barnaheilla, umboðsmanns barna og UNICEF …
Nýir talsmenn barna á Alþingi ásamt fulltrúum ungmennaráða Barnaheilla, umboðsmanns barna og UNICEF á Íslandi.

Í dag gerðust átta þingmenn allra stjórnmálaflokka á Alþingi talsmenn barna. Þeir undirrituðu yfirlýsingu þess efnis að þeir skuldbindi sig til að hafa barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi í störfum sínum á þinginu og leitist við að tileinka sér barnvæn sjónarmið og hafa hagsmuni barna að leiðarljósi. Til að undirbúa sig undir þetta mikilvæga hlutverk sóttu þingmennirnir námskeið þar sem fulltrúar ungmennaráða Barnaheilla og UNICEF auk ráðgjafahóps umboðsmanns barna kynntu þeim ákvæði Barnasáttmálans og hvernig hann nýtist við ákvarðanatöku og stefnumótun. Ungmennin lögðu áherslu á að réttindi barna yrðu höfð að leiðarljósi við allar ákvarðanir talsmannanna á þingi.

Talsmenn barna undirrita yfirlýsingu

 

Fulltrúar ungmennaráða

Talmenn barna

 

Ungmennaráð UNICEF og Barnaheilla og ráðgjafahópur umboðsmanns barna stýrðu undirrituninni á Alþingi í dag og óskuðu þingmönnunum til hamingju með  hlutverk sitt sem talsmenn barna. Þau lögðu áherslu á mikilvægi þess að þingmenn hlusti á raddir og sjónarmið barna.

Hver flokkur tilnefnir einn aðalmann og einn varamann. Eftirtaldir þingmenn eru talsmenn barna á yfirstandandi þingi:

Flokkur fólksins
Aðalmaður: Inga Sæland
Varamaður: Guðmundur Ingi Kristinsson

Framsóknarflokkur
Aðalmaður: Líneik Anna Sævarsdóttir
Varamaður: Willum Þór Þórsson

Miðflokkur
Aðalmaður: Gunnar Bragi Sveinsson
Varamaður: Anna Kolbrún Árnadóttir

Píratar
Aðalmaður: Jón Þór Ólafsson
Varamaður: Björn Leví Gunnarsson

Samfylking
Aðalmaður: Oddný G. Harðardóttir
Varamaður: Ágúst Ólafur Ágústsson

Sjálfstæðisflokkur
Aðalmaður: Bryndís Haraldsdóttir
Varamaður: Vilhjálmur Árnason

Viðreisn
Aðalmaður: Þorsteinn Víglundsson
Varamaður: Hanna Katrín Friðriksson

Vinstri græn
Aðalmaður: Andrés Ingi Jónsson 
Varamaður: Steinunn Þóra Árnadóttir

Barnaheill, umboðsmaður barna og UNICEF á Íslandi eiga hugmyndina að því að skipa talsmenn barna. Var það gert í fyrsta skipti árið 2014.

Ljósmyndir: Unicef