??saldarmarkmi? Sameinu?u ?j??anna um menntun fyrir ?ll b?rn ?ri? 2015 n?st ekki a? ?breyttu a? mati

Alþjóðasamtökin Barnaheill - Save the Children vara við því í nýrri skýrslu samtakanna að þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um menntun fyrir öll börn fyrir árið 2015 náist ekki ef þjóðir heims herði ekki róðurinn enn frekar - en sá tími sem þær settu sér árið 2000, til að ná þessum markmiðunum, er nú hálfnaður.

 

 

Alþjóðasamtökin Barnaheill - Save the Children vara við því í nýrri skýrslu samtakanna að þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um menntun fyrir öll börn fyrir árið 2015 náist ekki ef þjóðir heims herði ekki róðurinn enn frekar - en sá tími sem þær settu sér árið 2000, til að ná þessum markmiðunum, er nú hálfnaður.

Skýrsla Barnaheilla - Story of the Future - er kynnt víða um heim í dag, 20. júní, á alþjóðadegi flóttamanna. Meginniðurstaða hennar er að ef fjárframlög til þessara mála aukist ekki til muna, verði að minnsta kosti 30 milljónir barna, flestöll frá stríðshrjáðum löndum, enn án menntunar árið 2015. Jafnframt kemur fram í skýrslunni að mjög erfitt sé að ná til þessara barna.

Af þeim 77 milljónum barna sem ekki eru í skóla búa 39 milljónir í löndum þar sem ríkja átök eða hafa ríkt lengi. Samt sem áður fara einungis 23% af heildarframlagi til menntunaraðstoðar til þessara landa. Stærsti hluti fjármagnsins fer til landa þar sem ríkir stöðugleiki.

„Frá því að Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt árið 1948 hafa leiðtogar heims gefið loforð til allra barna um að þau eigi rétt á að ganga í skóla og mennta sig. Ef ráðamenn heimsins herða hins vegar ekki róðurinn, mun þetta loforð ekki nást fyrir árið 2015," segir Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla á Íslandi.

Í skýrslu Barnaheilla er einnig gerð grein fyrir þvi hvernig ríkustu þjóðir heimsins eru að bregðast börnum í fátækum og stríðshrjáðum löndum. Hærri fjárframlög myndu breyta lífi barnanna til mikilla muna en skýrslan sýnir m.a. hvernig skuldbindingar og fjárframlög til þeirra landa sem mest þurfa á aðstoð að halda hafa minnkað verulega frá árinu 2004.

„Fyrir tveimur vikum sögðu leiðtogar átta helstu iðnríkja heims (G8), að áhersla yrði lögð á aðstoð við þau lönd sem lengst eiga í land með að ná þúsaldarmarkmiðinu um menntun fyrir alla árið 2015. Við vonum að í dag, á alþjóðadegi flóttamanna, muni leiðtogar heimsins eftir þeim börnum um heim allan sem lifa í skugga átaka og stendur ekki til boða skólaganga. Fyrir þá kynslóð barna sem nú er að vaxa úr grasi án menntunar, mun nýtt loforð um menntun fyrir alla árið 2015 einfaldlega vera of seint." segir Petrína.

„Að veita þessum börnum tækifæri til að ganga í skóla er forsenda þess að ná öðrum þúsaldarmarkmiðum. Menntun er lykilþáttur í að byggja upp framtíð barna og samféla