Ungmenni geta haft mikil áhrif

Þekkir þú ungmenni sem vilja taka þátt í að vinna að mannréttindum barna? Nú þegar samfélagið hefur opnast að nýju eftir Covid-19 faraldurinn köllum við hjá Barnaheillum eftir ungu fólki til að hafa áhrif og leggja sitt af mörkum til að breyta heiminum.

Ungheill eru ungmennaráð Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Þar eru ungmenni á aldrinum 13 – 18 ára og geta allir sem eru á þessum aldri gefið kost á sér í stjórn ráðsins. Hlutverk Ungheilla er meðal annars að vera til ráðgjafar í starfsemi Barnaheilla.

Með þátttöku í ungmennaráðinu gefst ungmennum tækifæri til þess að hafa bein áhrif á málefni sem skipta þau máli. Er það gert með margvíslegum hætti líkt og með greinaskrifum, umsögnum um lagafrumvörp, samstarf við önnur ungmennaráð og félagasamtök og með því að setja þrýsting á stjórnvöld. Þeir sem taka þátt hafa ótal tækifæri til þess að kynnast nýjum málefnum, nýju fólki og jafnvel taka þátt í erlendu samstarfi. Fulltrúi Ungheilla situr stjórnarfundi Barnaheilla.

Stjórn Ungheilla starfar eftir gildum og markmiðum Barnaheilla og er Barnasáttmálinn leiðarljós í öllum verkefnum og allri ákvörðunartöku samtakanna. Raddir og skoðanir ungmenna skipta gríðarlega miklu máli og það er mikill auður fyrir Barnaheill að hafa starfandi, virkt og öflugt ungmennaráð, en það sem skiptir ekki minna máli eru áhrifin sem ungmennaráð getur haft á samfélagið í heildina með þeim verkefnum sem það tekur sér fyrir hendur.

Þann 7. október næstkomandi fer fram aðalfundur Ungheilla á skrifstofu Barnaheilla, Fákafeni 9, 2. hæð. Fundurinn hefst kl. 16:00 og lýkur kl. 19:00. Við hjá Barnaheillum hvetjum ungmenni til þess að mæta og hafa áhrif sem og þeir sem hafa áhuga á að gefa kost á sér í stjórn ungmennaráðsins.

 

Grein birtist á Vísi.is þann 4. október 2021