Ungmenni ganga á fund ríkisstjórnarinnar

Fátítt er að utanaðkomandi aðilar gangi á ríkisstjórnarfund en í morgun var brugðið út af þeirri venju þegar fulltrúar úr ungmennaráðum Barnaheilla, UNICEF og umboðsmanns barna hittu ráðherra á fundi í Stjórnarráðinu. Fundurinn í morgun var hluti af dagskrá í tilefni 25 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem fagnað verður fimmtudaginn 20. nóvember næstkomandi.

 


Ríkisstjórnarfundur (3)Fulltrúar ungmennaráða Barnaheilla, UNICEF og Umboðsmanns barna sátu fund ríkisstjórnar Íslands fyrr í dag í tilefni af afmæli Barnasáttmálanna sem er 25 ára á fimmtudaginn.

Forsætisráðherra segir gagnlegt fyrir stjórnmálamenn að ræða við börn um málefni þeirra


Fátítt er að utanaðkomandi aðilar gangi á ríkisstjórnarfund en í morgun var brugðið út af þeirri venju þegar fulltrúar úr ungmennaráðum Barnaheilla, UNICEF og umboðsmanns barna hittu ráðherra á fundi í Stjórnarráðinu. Fundurinn í morgun var hluti af dagskrá í tilefni 25 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem fagnað verður fimmtudaginn 20. nóvember næstkomandi.

Ein af grundvallarforsendum Barnasáttmálans, sem var lögfestur á Íslandi 20.febrúar 2013, er að í öllum málum er varða börn með einum eða öðrum hætti eigi þau rétt á að tjá sig og hafa áhrif.  Hér á landi er lítil hefð fyrir að börn og ungmenni taki þátt í ákvörðunum sem varða þau, þá sérstaklega innan stjórnsýslunnar. Í því felst ein stærsta áskorunin þegar kemur að innleiðingu Barnasáttmálans á Íslandi. 

„Við erum sérfræðingar í að vera börn og erum þess vegna hæfust til að benda á hvað þarf að laga í málefnum sem tengjast okkur. Þess vegna á að hlusta á okkur, spyrja okkur og taka mark á því sem við segjum," sagði Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, 15 ára nemandi í Garðaskóla og fulltrúi ungmennaráðs UNICEF á fundinum.

„Góður fundur og gagnlegur“

„Þetta var góður og gagnlegur fundur. Ég tel það mjög æskilegt að ráðherrar, alþingsmenn og þeir sem starfa við stjórnmál hittu börn oftar og ræddu við þau um hvernig þau sjá hlutina. Það er gagnlegt fyrir stjórnmálamenn, ekki síður en börnin. Fáir eru til dæmis betur til þess fallnir að meta starfsemi skólanna en þeir sem eru þar alla daga,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, að fundi loknum. 

Á ríkisstjórnarfundinum greindu fulltrúar ungmennaráðanna ráðherrunum frá málefnum sem brenna á ungu fólki á Íslandi, s.s. geðheilbrigðismál og menntamál, ásamt því að ræ&et