Upplifum ævintýrin saman - Símalaus Sunnudagur

Snjallsímar og önnur snjalltæki eru skemmtileg og gagnleg tæki sem hafa umbylt því hernig við eigum í samskiptum, nálgumst upplýsingar og verjum tíma okkar. Í mörgum tilvikum eru áhrif tækninnar jákvæð og sniðgug en einnig hefur verið bent á skuggahliðar hennar. Óhófleg notkun á snjalltækjum getur meðal annars haft áhrif á samskipti innan fjölskyldunnar - samskiptin og nándin minnka því það er eitthvað annað sem stelur athyglinni.

Sunnudaginn 15. nóvember hvetja Barnaheill landsmenn til að leggja frá sér símann og önnur snjalltæki í 12 klukkustundir (klukkan 9-21). Með uppátækinu viljum við vekja foreldra og annað fullorðið fólk til umhugsunar um snjalltækjanotkun innan heimilisins og þau áhrif sem tækin geta haft á samverustundir fjölskyldunnar.

Yfirskrift átaksins er: „Upplifum ævintýrin saman“ til að minna okkur á þau ævintýri sem geta falist í samverustundum foreldra og barna þegar síminn er hvíldur um stund.

Hægt er að skrá sig til leiks á www.simalaus.is og taka áskorun Barnaheilla. Allir þátttakendur eiga möguleika á að vinna fjölbreytta og fjölskylduvæna útdráttarvinninga og fá auk þess nokkur góð ráð send laugardaginn 14. nóvember.