Út að borða fyrir börnin hefst á morgun

Út að borða fyrir börninÚt að borða fyrir börnin, fjáröflunarátak Barnaheilla og veitingastaða, hefst á morgun. Alls styðja 33 veitingastaðir átakið á 106 stöðum víða um land með því að láta hluta af verði valinna rétta renna til verkefna sem snúa að vernd barna gegn ofbeldi. Átakið fer nú fram í níunda sinn og stendur yfir í einn mánuð eða frá 15. febrúar til 15. mars.

„Við erum afar þakklát þeim veitingastöðum sem eru tilbúnir að styðja verkefni Barnaheilla með þessum hætti,“ segir Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi; „Samtökin eru háð velvilja og stuðningi bæði almennings og fyrirtækja og þetta hjálpar okkur að vinna enn betur að þeim mikilvægu verkefnum sem heyra undir þennan málaflokk hjá okkur. Auk fastra verkefna sem samtökin vinna að má nefna mannúðar- og neyðaraðstoð í tengslum við átakið STÖÐVUM STRÍÐ GEGN BÖRNUM (STOP THE WAR ON CHILDREN) sem er í tilefni af 100 ára afmæli alþjóðasamtakanna í ár.“

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var lögfestur hér á landi árið 2013 og í honum er börnum tryggður réttur til verndar gegn ofbeldi. Það er hlutverk hinna fullorðnu að gæta þess að hvert og eitt barn njóti réttar síns.

Eitt stærsta verkefni Barnaheilla sem snýr að vernd barna gegn ofbeldi er Vinátta, forvarnarverkefni gegn einelti í leik- og grunnskólum. Verkefnið er danskt að uppruna, byggt á nýjustu rannsóknum um einelti og hefur reynst sérstaklega vel. Samtökin gáfu út Vináttuefni fyrir 3ja–6 ára árið 2016 og fyrir 0–3ja ára nú í ársbyrjun 2019. Tilraunakennsla á efni fyrir yngstu bekki grunnskóla stendur yfir.

„Þú getur slegið tvær flugur í einu höggi með því að fara út að borða með börnin. Bæði gleður þú börnin og átt með þeim samverustund og stuðlar í leiðinni að mannréttindum barna og vernd þeirra gegn ofbeldi,“ segir Erna.

Barnaheill gefa meðal annars út fræðsluefni um ofbeldi, vinna að vitundarvakningu, reka ábendingarhnapp um óviðeigandi eða ólöglegt efni á netinu í samvinnu við ríkislögreglustjóra, standa að fræðsluvef um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og sinna fræðslu- og upplýsingagjöf um einnkenni og afleiðingar ofbeldis gegn börnum og aðgerðir vakni grunur um slíkt. Þá veita samtökin ráðgjöf og vinna að fjölda lagaumsagna þar sem þrýst er á stjórnvöld að tryggja með lögum að börnum sé veitt vernd gegn hvers kyns ofbeldi.