Út að borða fyrir börnin 2015

Út að borða fyrir börnin - fjáröflunarátak Barnaheilla og veitingastaða – hefst í dag og stendur til 15. mars. Veitingastaðirnir styðja átakið með því að láta hluta af verði valinna rétta renna til verkefna Barnaheilla sem snúa að vernd barna gegn ofbeldi.

Út að borða fyrir börnin - fjáröflunarátak Barnaheilla og veitingastaða – hefst formlega í dag í fimmta sinn og stendur til 15. mars. Veitingastaðirnir styðja átakið með því að láta hluta af verði valinna rétta renna til verkefna Barnaheilla sem snúa að vernd barna gegn ofbeldi. Aldrei hafa fleiri staðir tekið þátt í átakinu, en þeir eru 26 í ár - þ.e. 25 nöfn en 89 að meðtöldum öllum stöðum í keðjum.

Öll börn eiga rétt á vernd gegn hvers kyns ofbeldi, hvort sem um er að ræða líkamlegt, andlegt eða kynferðislegt ofbeldi - og þau eiga rétt á vernd gegn einelti og vanrækslu. Ofbeldi gegn börnum í ýmsum myndum er sorgleg staðreynd á Íslandi. Það er hlutverk hinna fullorðnu að gæta þess að hvert og eitt barn njóti réttar síns samkvæmt Barnasáttmálanum, sem Ísland festi í lög árið 2013.

Helstu verkefni Barnaheilla – Save the Children á Íslandi snúa að vernd barna gegn ofbeldi. Samtökin gefa meðal annars út fræðsluefni um ofbeldi, vinna að vitundarvakningu, reka ábendingarhnapp um óviðeigandi eða ólöglegt efni á netinu í samvinnu við ríkislögreglustjóra, vinna a vernd barna gegn klámi, standa að gagnvirkum fræðsluvef um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og reka fræðslu- og upplýsingavefinn verndumborn.is þar sem finna má upplýsingar um einnkenni og afleiðingar ofbeldis gegn börnum og aðgerðir vakni grunur um slíkt. Vináttu-verkefni Barnaheilla er forvarnarverkefni gegn einelti í leikskólum sem hófst árið 2014. Þá veita samtökin ráðgjöf og vinna að fjölda lagaumsagna þar sem þrýst er á stjórnvöld að tryggja með lögum að börnum sé veitt vernd gegn hvers kyns ofbeldi.

Þeir staðir sem taka þátt í átakinu árið 2015 eru:

Staðir 2015 1000

Sjávargrillið - 100% af barnamatseðli
Nings - 50% af barnamatseðli
Nauthóll - 50% af barnamatseðli
Við Pollinn / Hótel Ísafjörður - 50% af barnamatseðli
Sólon - 50% af barnamatseðli
Kopar - 50% af barnamatseðli
900 Grillhús í Vestmannaeyjum - 40% af barnamatseðli
Dominos - 35% af sóttum pizzum - gildir ekki á tilboðum
Grill 66 - 25% af barnamatseðli
KFC - 25% af barnamatseðli
Laugaás - 25% af barnamatseðli
Ruby Tuesday - 25% af barnamatseðli
Íslenska kaffistofan - 25% af kaffidrykkjum
Kringlukráin - 25% af barnamatseðli
Bryggjan á Akureyri - 25% af barnamatseðli
Vegamót - 25% af barnamatseðli
Steikhúsið - 25% af barnamatseðli