?t a? bor?a fyrir b?rnin 2015

Fjáröflunarátak Barnaheilla og veitingastaða, Út að borða fyrir börnin styður verkefni sem snúa að vernd barna gegn ofbeldi. Átakið fer fram dagana 15. febrúar til 15. mars. Staðirnir styðja átakið með því að láta hluta af verði valinna rétta renna til verkefna sem snúa að vernd barna gegn ofbeldi.

ut_ad_borda_myndFjáröflunarátak Barnaheilla og veitingastaða, Út að borða fyrir börnin styður verkefni sem snúa að vernd barna gegn ofbeldi. Átakið fer fram dagana 15. febrúar til 15. mars. Staðirnir styðja átakið með því að láta hluta af verði valinna rétta renna til verkefna sem snúa að vernd barna gegn ofbeldi.

Öll börn eiga rétt á vernd gegn hvers kyns ofbeldi, hvort sem um er að ræða líkamlegt, andlegt eða kynferðislegt ofbeldi - og þau eiga rétt á vernd gegn einelti og vanrækslu. Ofbeldi gegn börnum í ýmsum myndum er sorgleg staðreynd á Íslandi. Það er hlutverk hinna fullorðnu að gæta þess að hvert og eitt barn njóti réttar síns samkvæmt Barnasáttmálanum, sem Ísland festi í lög árið 2013.

Helstu verkefni Barnaheilla – Save the Children á Íslandi snúa að vernd barna gegn ofbeldi. Samtökin gefa meðal annars út fræðsluefni um ofbeldi, vinna að vitundarvakningu, reka ábendingarhnapp um óviðeigandi eða ólöglegt efni á netinu í samvinnu við ríkislögreglustjóra, vinna a vernd barna gegn klámi, standa að gagnvirkum fræðsluvef um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og reka fræðslu- og upplýsingavefinn verndumborn.is þar sem finna má upplýsingar um einnkenni og afleiðingar ofbeldis gegn börnum og aðgerðir vakni grunur um slíkt. Vináttu-verkefniBarnaheilla er forvarnarverkefni gegn einelti í leikskólum sem hófst árið 2014. Þá veita samtökin ráðgjöf og vinna að fjölda lagaumsagna þar sem þrýst er á stjórnvöld að tryggja með lögum að börnum sé veitt vernd gegn hvers kyns ofbeldi.

Þeir staðir sem taka þátt í átakinu árið 2015 eru 26 talsins - þ.e. 26 fyrirtæki en 89 staðir að meðtöldum fjölda staða í hverri keðju:

 

Staðir 2015_nytt