Út að borða fyrir börnin 2016

Út að borða fyrir börnin er fjáröflunarátak Barnaheilla og veitingastaða sem styðja vernd barna gegn ofbeldi. Átakið fer fram dagana 15. febrúar - 15. mars ár hvert.

Úab mynd
Út að borða fyrir börnin
 er fjáröflunarátak Barnaheilla og veitingastaða sem styðja vernd barna gegn ofbeldi. Átakið fer fram dagana 15. febrúar til 15. mars ár hvert.

Veitingastaðirnir styðja átakið með því að láta hluta af verði valinna rétta renna til verkefna sem snúa að vernd barna gegn ofbeldi.

Öll börn eiga rétt á vernd gegn hvers kyns ofbeldi, hvort sem um er að ræða líkamlegu, andlegu eða kynferðislegu ofbeldi - og þau eiga rétt á vernd gegn einelti og vanrækslu. Það er hlutverk hinna fullorðnu að gæta þess að hvert og eitt barn njóti réttar síns samkvæmt Barnasáttmálanum, sem Ísland festi í lög árið 2013. 

Að þessu sinni taka 30 veitingastaðir þátt í átakinu: 

Staðir grafík

Sjávargrillið - 100% af barnamatseðli
Nauthóll - 50% af barnamatseðli
Nings - 50% af barnamatseðli
Kopar - 50% af barnamatseðli
Sólon - 50% af barnamatseðli
Við Pollinn / Hótel Ísafjörður - 50% af barnamatseðli
900 Grillhús í Vestmannaeyjum - 40% af barnamatseðli
Dominos - 35% af sóttum pizzum - gildir ekki á tilboðum
Hamborgarafabrikkan - 25% af barnamatseðli 
Bryggjan á Akureyri - 25% af barnamatseðli 
KFC - 25% af barnamatseðli 
Íslenska kaffistofan - 25% af kaffidrykkjum 
Vegamót - 25% af barnamatseðli 
Subway - 25% af barnamatseðli
Rossopomodoro - 25% af barnamatseðli
Taco Bell - 25% af barnamatseðli 
Ruby Tuesday - 25% af barnamatseðli 
Skrúður - 25% af barnamatseðli 
Grillhúsið 25% af barnamatseðli 
Laugaás - 25% af barnamatseðli 
Serrano - 25% af barnamatseðli
Nam 25% af barnamatseðli
Pizza Hut - 25% af barnamatseðli
Salt Café og Bistro Egilsstöðum - 25% af barnamatseðli
Kringlukráin - 25% af barnamatseðli
Laundromat - 25% af barnamatseðl
Grill 66 - 25% af pylsu og svala
Steikhúsið - 25% af barnamatseðli 
Olsen Olsen Reykjanesbæ - 25% af barnamatseðli 
Mar - 15% af barnamatseðli og af tveimur réttum fyrir fullorðna

Einnig er hægt að styðja átakið um 1.000 krónur með því að senda sms í símanúmerið 904 1900 með textanum "fyrir bornin".

Helstu verkefni Barnaheilla – Save the Children á Íslandi snúa að vernd barna gegn ofbeldi. Samtökin gefa meðal annars út fræðsluefni um ofbeldi, vinna að vitundarvakningu, reka ábendingarhnapp um óviðeigandi eða ólöglegt efni á netinu í samvinnu við ríkislögreglustjóra, vinna a vernd barna gegn klámi, standa að gagnvirkum fræðsluvef um barnasáttmála Sameinuðu þ