Áskorun til utanríkisráðherra um að beita sér í baráttunni um að stöðva stríð gegn börnum

Fulltrúar Barnaheilla ásamt utanríkisráðherra í gær. Ljósmynd: UTN
Fulltrúar Barnaheilla ásamt utanríkisráðherra í gær. Ljósmynd: UTN

 Fulltrúar Barnaheilla afhentu Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra áskorun um að stöðva stríð gegn börnum. Jafnframt var biðlað til hans að beita sér fyrir því á alþjóðavettvangi að stöðva stríð gegn börnum og sjá til þess að Ísland verði í fararbroddi í slíkri vinnu.

Börn voru í meirihluta á fundi í utanríkisráðuneytinu og skilaboð þeirra til ráðherra voru skýr: að tryggja börnum vernd gegn drápum, limlestingum og hvers kyns ofbeldi; að tryggja börnum vernd gegn því að ganga til liðs við stríðandi fylkingar; að tryggja að engu barni sé neitað um mannúðaraðstoð þegar stríð geisar; að tryggja að skólar og heilsugæslustöðvar séu friðarsvæði og njóti verndar; að tryggja að fylgst sé grannt með brotum gegn réttindum barna í stríði, skýrt sé frá þeim og brugðist við; að tryggja að þeir sem fremja eða bera ábyrgð á ofbeldi gegn börnum, séu látnir svara til saka.

Alexander Amodou afhenti utanríkisráðherra áskorunina en önnur börn sem tóku til máls á fundinum voru Orri Eliasen, Axel Ingi, Ýr, Anja Sæberg, Elsa Margrét, Sigríður Erla, Ingibjörg Elka og Jóhann Már.

Þessi aðgerð er hluti af 100 ára afmælisátaki Barnaheilla sem stendur yfir í  þessum mánuði með yfirskriftinni að stöðva stríð gegn börnum.

 

Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.