Viðmið um skjánotkun barna

Að frumkvæði umboðsmanns barna hafa verið gefin út viðmið um skjánotkun barna og ungmenna til stuðnings foreldrum við að stuðla að jákvæðri og uppbyggilegri umgengni við tækni, tölvur og snjalltæki. Útgáfa viðmiðanna er í samstarfi umboðsmanns barna, Barnaheilla, embættis landlæknis, Heilsugæslunnar, Heimilis og skóla, Landspítalans og SAFT.

Viðmiðin eru gefni út fyrir aldursbilin 0–5 ára, 6–12 ára og 13–18 ára.

Hér fyrir neðan má skoða viðmið fyrir hvert aldursstig með því að smella á myndina.

Viðmið um skjánotkun 0-5 ára    Viðmið um skjánotkun 6-12 ára    Viðmið um skjánotkun 13-18 ára