Vörunr. LL 0003

Líflína Barnaheilla 2023

Verðm/vsk
3.000 kr.
Nafn Fullorðinsstærð
Verð
Verðm/vsk
3.000 kr.
Birgðir 8864
Stærð
Fullorðinstærð

Nafn Barnastærð
Verð
Verðm/vsk
3.000 kr.
Birgðir 9594
Stærð
Barnastærð

Verðm/vsk
3.000 kr.

Söfnunin Líflína Barnaheilla er fjáröflunarleið Barnaheilla til styrktar erlendu starfi samtakana. Með kaupum á armbandinu styður þú við vernd barna gegn ofbeldi. Fjármagnið sem safnast nýtist meðal annars til aðstoðar við börn sem gengið hafa til liðs við vígahópa á átakasvæðum, til koma undir sig fótunum á , v veitum stúlkum öruggt umhverfi til menntunar, þjálfum kennara í jákvæðum kennsluaðferðum og virðingarríkum samskiptum, hjálpum börnum sem brotið hefur verið á leita réttar síns og ná fram réttlæti og viðveitum börnum á átakasvæðum geðheilbrigðisþjónustu, svo fátt eitt nefnt.

Framleiðsluferli armbandanna

Armböndin sem seld eru í Haustsöfnun Barnaheilla 2023 eru gerð af handverksfólki sem starfa á Lumley Beach markaðnum í Freetown, höfuðborg Síerra Leóne. Með framleiðslunni leggja Barnaheill áherslu á sjálfbærni, atvinnusköpun, jafnréttismál og umhverfismál.

Þetta er annað árið í röð sem Barnaheill selja umhverfisvæn armbönd unnin af handverksfólki í Síerra Leóne. Þetta árið voru framleidd 12.000 armbönd og eru þau gerð úr kaffibaunum. Kaffibaunirnar eru hvítar upprunalega en ein baun er lituð rauð í hverju armbandi. Framleiðsluferlið tók um fjóra mánuði og fékk handverksfólk laun sem samsvaraði árslaunum fyrir vinnu sína.