Páll Valur hlaut Barnaréttindaverðlaunin

Páll Valur Björnsson þingmaður Bjartrar framtíðar hlaut í dag Barnaréttindaverðlaun ungmennaráða Barnaheilla - Save the Children á Íslandi, UNICEF á Íslandi og ráðgjafarhóps umboðsmanns barna.

IMG_8397a minniPáll Valur Björnsson þingmaður Bjartrar framtíðar hlaut í dag Barnaréttindaverðlaun ungmennaráða Barnaheilla - Save the Children á Íslandi, UNICEF á Íslandi og ráðgjafarhóps umboðsmanns barna. Verðlaunin falla í hlut þess þingmanns sem ungmennunum þykja hafa staðið sig best í að vekja athygli á og berjast fyrir réttindum barna á Alþingi á ári hverju. Verðlaunin verða veitt árlega og voru afhent í fyrsta skipti í dag.  

Í rökstuðningi ungmennaráðanna kom fram að Páll Valur skari fram úr öðrum þingmönnum við að vekja athygli á hagsmunum barna á Íslandi, ekki síst þeirra barna sem standi höllum fæti í samfélaginu. Hann hafi án afláts sett upp „barnagleraugun“ í þeim tilgangi að berjast fyrir réttindum barna á Íslandi. „Barnagleraugun eru tæki sem talsmenn barna á Alþingi eiga að nota til þess að sjá heiminn frá sjónarhorni barns,“ sagði í rökstuðningi ungmennaráðanna.

„Páll Valur gerir sér grein fyrir að börn eiga sín eigin mannréttindi sem þarf að vernda og framfylgja. En allir verða að leggja hönd á plóg til að skapa betri heim fyrir öll börn. Við óskum Páli Vali til hamingju með verðlaunin. Störf hans hafa verið til fyrirmyndar og munu vonandi verða hvatning fyrir samstarfsmenn hans til þess að berjast fyrir réttindum barna.“

Herdís Ágústa Linnet, formaður ungmennaráðs Barnaheilla, hélt ræðu á athöfninni og benti meðal annars á að börn og ungmenni væru stór hópur, sem alltof oft heyrðist lítið í. „Þess vegna viljum við veita þeim viðurkenningu sem berjast fyrir réttindum okkar, hlusta á okkur og bera virðingu fyrir okkur sem einstaklingum,“ sagði hún.

Að lokinni ræðu Herdísar fékk Páll Valur afhent viðurkenningarskjal og verðlaunagrip.


Réttindamál barna

Ungmennaráðin benda á að Páll Valur Björnsson hafi í störfum sínum á Alþingi lagt mikið af mörkum til réttindamála barna. Hann var fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu sem samþykkt var í vor, um að 20. nóvember, alþjóðlegur dagur barnsins, verði helgaður fræðslu um réttindi barna í grunnskólum landsins. Hann hefur beitt sér fyrir því að grunnskólanám verði raunverulega gjaldfrjálst, bent á aðstöðuleysi á Litla-Hrauni og að börn geti ekki heimsótt feður sína sem þar eru vistaðir, lagt fram fyrirspurnir til ráðherra um m&aacut