Veggspjald

Örugg börnÖrugg börn 
Um árabil hafa Barnaheill – Save the Children á Íslandi boðið heilsugæslustöðvum veggspjald um slysavarnir barna til að afhenda foreldrum í ung- og smábarnavernd. Veggspjaldið var endurgert árið 2016 í samstarfi við forvarnardeild VÍS. Það nefnist Örugg börn og er tilvalið að hengja upp á áberandi stað á heimilinu. Það sýnir hvernig hægt er að búa heimili og umhverfi barna á sem öruggastan hátt og reyna þannig að koma í veg fyrir að börn slasist, því slys eru yfirleitt engin tilviljun. Mælt er með því að veggspjaldið sé afhent foreldrum í fimm mánaða skoðun. Hægt er að panta veggspjaldið á vefsíðu samtakanna.

panta

Karl Jóhann Jónsson listmálari gerði myndirnar á veggspjaldinu sem sjá má hér til hliðar. Á bakhlið þess er texti sem minnir foreldra á að hverju þarf að huga til að gera umhverfi barna eins öruggt og mögulegt er.

Kæra fjölskylda!
Fátt skiptir meira máli en velferð barna okkar. Slysavarnir eru þar mikilvægar, enda slys yfirleitt ekki tilviljun. Samkvæmt skráningu hjá Slysaskrá Íslands slasast árlega um 6000 börn undir tíu ára aldri og eru fallslys algengust.

Á veggspjaldi þessu eru tiltekin nokkur atriði sem vert er að hafa í huga varðandi öryggi barna í sínu nánasta umhverfi. Tilvalið er að hengja veggspjaldið upp á vegg, 50 cm frá gólfi, og nýta mælistikuna til að fylgjast með vexti barnsins.

Ekki er hægt að sýna öll öryggisatriði í umhverfi barna á veggspjaldi sem þessu, en örvarnar benda á það helsta á hverri mynd:

Garður: Aðeins einn í einu á trampólíni – Festa trampólín tryggilega – Hafa öryggisnet á trampolíni og loka því við notkun – Hafa hlíf yfir gormum trampólíns – Fylgjast stöðugt með ungu barni í vatni, s.s. í heitum potti og sundi – Ósynd börn noti ávallt armkúta.

Stofa: Nota öryggishlið efst og neðst við stiga – Nota snúrustytti á gardínubönd – Opnanlegt fag má ekki opnast meira en 9 cm – Hylja hvöss horn.

Hjól: Nota hjálm og gæta þess að hann sé rétt stillltur og endingartími í lagi – Taka hjálm af höfði, t.d. þegar á að leika og setja hann á öruggan stað – Hafa glitaugu á hjóli og ljós ef hjólað er í myrkri – Nota viðeigandi hlífar, t.d. á hlaupahjóli og bretti – Bakka bíl í stæði ef þess er kostur, sér í lagi þar sem börn eru að leik.

Eldhús: Geyma hreinsiefni, lyf og bætiefni þar sem börn ná ekki til – Nota öryggislæsingar á skápa og skúffur sem börn eiga ekki að komast í – Nota þar til gerðar öryggislæsingar ef innbyggð barnalæsing er ekki á bakaraofni eða helluborði  – Ung börn sitji beisluð í barnastól – Festa barnastóla við borð þar sem við á – Brytja mat smátt niður og almennt passa upp á smáhluti sem eru minni en 3,2 cm – Nota innri hellur fremur en þær fremri á eldavél.

Bað: Gæta að hitastigi vatns og nota hitastýrð blöndunartæki – Fylgjast stöðugt með ungu barni í vatni – Huga að fallhættu eins og t.d. af skiptiborði – Gæta að stöðugleika skiptiborðs – Geyma lyf og bætiefni í læstri hirslu – Hafa stama mottu í botni baðs og sturtu .

Umferð:
Leiða barn fjær gangstéttarbrún og umferð – Nota endurskin bæði á fatnað og hluti á borð við vagna og töskur – Hafa beisli á ungu barni í vagni eða kerru – Nota öryggisbúnað í bíl sem hæfir aldri og þyngd barns – Taka barn út úr bíl þeim megin sem ekki er umferð.