Vigdís Finnbogadóttir

VigdísÞað var á sumarmánuðum árið 1988 sem fagfólk á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans ákvað að tímabært væri að stofna til félagsskapar sem hefði það að megin markmiði að auka rétt barna í samfélaginu.  „Rädda barnen“ í Svíþjóð var höfð til fyrirmyndar við
skipulag samtakanna og frá upphafi var Vigdís Finnbogadóttir, þá
forseti Íslands, virkur þátttakandi í undirbúningsstarfinu. 

Þann 24. október 1989 var stofnfundur samtakanna og var Vigdís
meðal gesta. Að hennar ósk var hún skráð sem stofnfélagi númer eitt
og síðar gerðist hún opinber verndari Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Það er óumdeilt að stuðningur Vigdísar hefur í gegnum tíðina
verið ómetanlegur fyrir samtökin. Nafnið Barnaheill er m.a. komið úr smiðju hennar, Höllu Þorbjörnsdóttur og Ernu Þorleifsdóttur. Með þátttöku sinni í ótal viðburðum á vegum Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, sendir Vigdís Finnbogadóttir skýr skilaboð um að börnin séu framtíðin og að það sé á ábyrgð okkar allra að búa þeim betri heim.

Fórnfúst starf Vigdísar í þágu samtakanna og skýr sýn hennar á mikilvægi þess að tryggja réttindi barna hefur verið ómetanlegur styrkur í þann aldarfjórðung sem Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa verið starfrækt.

Vigdís Finnbogadóttir fæddist 15. apríl árið 1930. Hún varð stúdent árið 1949 og stundaði nám í frönsku og frönskum bókmenntum í Grenoble og við Sorbonne-háskóla í París á árunum 1949–1953. Hún nam leiklistarsögu við Kaupmannahafnarháskóla 1957–1958, tók BA-próf í frönsku frá Háskóla Íslands og próf í uppeldis- og kennslufræðum 1968. Vigdís er heiðursdoktor og heiðursprófessor við marga háskóla og stofnanir víðs vegar um heiminn. 

29. júní árið 1980 var Vigdís fyrsta konan í heiminum til að vera kjörin forseti í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún var endurkjörin án án atkvæðagreiðslu 1984, endurkjörin í kosningum 1988, aftur án atkvæðagreiðslu 1992 og lét af embætti 1996.

Það var mikill heiður fyrir Barnaheill – Save the Children á Íslandi að fá tækifæri til að þakka Vigdísi Finnbogadóttur traust samstarf á liðnum árum með þátttöku í hátíðardagskrá henni til heiðurs 15. apríl 2010, á áttræðisafmæli Vigdísar. Framlag samtakanna til þeirrar dagskrár var unnið af nemendum í 10. bekk Austurbæjarskóla sem gerðu myndband Vigdísi til heiðurs og var það tileinkað einu af hugðarefnum hennar; tungumálum. Frá árinu 2001, hefur stofnun í erlendum tungumálum borið nafn Vigdísar Finnbogadóttur. Stofnunin er rannsóknastofnun innan Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands og er rannsóknavettvangur kennara deildarinnar sem fást við erlend tungumál og fornfræði.