Siðareglur fyrir íþróttafélög og stofnanir

 

Siðareglur fyrir íþróttafélög og stofnanir

Afar mikilvægt er að horfast í augu við það að stofnanir og félagasamtök sem þjóna börnum og unglingum geta virkað eins og segull a barnaníðinga og kynferðisafbrotamenn. Í gegnum tíðina hefur þessum stofnunum og félögum hætt til að treysta þeim einstaklinum sem reiðubúnir hafa verið til að vinna með börnum; bjóða fram krafta sína, tíma og hæfileika í þágu barna. Mannekla skiptir sömuleiðis máli í þessu sambandi, því oftar en ekki hafa þessar stofnanir þurft á að halda öllum fáanlegum starfmönnum og sjálfboðaliðum. Svo virðist vera sem stjórnendur barna- og æskulýðsstarfs hiki við að setja sér strangar reglur um bakgrunn starfsmanna og eftirlit með þeim af ótta við að missa þá starfsmenn og sjálfboðaliða sem þeir þurfa svo mjög á að halda. Einnig vex þeim í augum sú aukna vinna sem slík stefnumótun og framkvæmd hennar hefði í för með sér.

Hér er hægt að nálgast bækling frá ÍSÍ um Forvarnir gegn kynferðisofbelid á börnum og unglingum í íþróttum.

 

Barnaheill telja eftirfarandi atriði mikilvæg fyrir stofnanir og félagasamtök:

  1. Allir sem starfi með börnum og unglingum þurfa að skrifa undir yfirlýsingu og afhenda sakavottorð eða gefa leyfi svo hægt sé að nálgast það.

  2. Lykilatriði – Fræðsla um aðgerðir varðandi ofbeldi sé skylda, ekki val, fyrir starfsfólk, leikmenn og áhugafólk sem starfa hjá stofnunum og félagasamtökum.

  3. Viðbragðsáætlun og tilkynningarferli: Hvort sem ofbeldi á sér stað utan eða innan stofnunarinnar.

  4. Vinnureglur og forvarnir: Verndar bæði starfsfólk og einstaklinga, börn og unglinga.

  5. Ekkert mál er innanhús mál!

  6. Mikilvægast af öllu er að sá sem leitar sér aðstoðar, barn eða fullorðinn, sé trúað og fái hlustun.

  7. Fjármagni er best varið í að gera starfsreglur og aðgerðir til varnar ofbeldi.

  8. Einnig er mikilvægt að þeir sem hafa verið kærðir fyrir kynferðisbrot og sýknaðir skuli ekki vera færðir til í starfi né fái að vinna innan stofnunar sem starfar með börnum og unglingum.

  9. Vinnureglur um viðbrögð varðandi fullorðna einstaklinga sem koma fram eftir að það hefur verið brotið á þeim sem börn á stofnuninni.

Dæmi um Siðareglur hjá HK Sjá tengil hér.
Dæmi um umsókn og ráðningarsamning hjá HK

Vinsamlegast hafið samband ef óskað er eftir ráðgjöf eða fræðslu fyrir félagasamtökin eða stofnunina.

Barnaheill@barnaheill.is