Save The Children

Barnaheill - Save the Children eru stærstu alþjóðlegu frjálsu félagasamtök sem starfa í þágu barna í heiminum. Þau voru stofnuð í Bretlandi árið 1919 og  fögnuðu því 100 ára afmæli árið 2019. Á vegum alþjóðasamtakanna eru 30 landsfélög sem vinna að réttindum og velferð barna í 120 löndum og hafa Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. 

Neyðaraðstoð er ein af meginstoðum alþjóðlegs starfs Barnaheilla – Save the Children. Alþjóðasamtökin eru með áratuga reynslu í hjálparstarfi á hamfarasvæðum. Þar sem samtökin vinna að verkefnum í um 120 löndum, eru þau oftar en ekki til staðar á svæðum þar sem hamfarir verða og geta því brugðist fljótt við neyð í viðkomandi löndum.

Í hjálparstarfinu gæta Barnaheill – Save the Children sérstaklega að velferð barna en börn þurfa sérstaka vernd á tímum hamfara. Samtökin leggja áherslu á að grunnmenntun barna verði hluti af neyðaraðstoð, ekki síst á átakasvæðum þar sem neyðarástand hefur ríkt í langan tíma.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi vinna náið með Save the Children um mótun stefnu og starfshátta. Starfsmenn samtakanna eru í miklum samskiptum við starfsmenn alþjóðaskrifstofunnar, sem staðsett er í London.