Barnaheill og KSÍ

Haustið 2022 hófu Barnaheill og Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) tveggja ára samstarf um fræðsluverkefnið Verndara barna með það að markmiði að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi gegn börnum, þekkja einkenni ofbeldis og læra að bregðast við.

Samstarfsverkefnið byggir á því að sérfræðingur frá Barnaheillum heimsækir knattspyrnufélög um allt land og heldur fræðslu. Markmiðið er að í lok samstarfsins, sem er til tveggja ára, hafi öll aðildarfélög KSÍ fengið heimsókn og fræðslu.

Allt starfsfólk í knattspyrnustarfi barna eru hvött til að mæta á fræðslu hjá sínu félagi, þ.e. starfsfólk á skrifstofu félagsins, þjálfarar, húsverðir, sjálfboðaliðar, foreldrar og allir sem finnst þeir eiga erindi. Fræðslan tekur fjóra klukkutíma og er aðildarfélögum KSÍ að kostnaðarlausu. 

Eins og fram kemur í stefnu KSÍ um samfélagsleg verkefni lítur Knattspyrnusamband Íslands á það sem skyldu sína að nýta þann kraft sem býr í knattspyrnufjölskyldunni til að vera virkur þátttakandi í samfélagslegum verkefnum sem gera raunverulegt og áþreifanlegt gagn.

KSÍ og Barnaheill hvetja félögin til að hafa samband með tölvupósti á netfangið verndararbarna@barnaheill.is með ósk um dagsetningu á fræðslunni og/eða fyrir nánari upplýsingar.