Heilsa og líðan

Heilsan skiptir okkur miklu máli. Að hafa góða heilsu og líða vel hjálpar okkur að takast á við lífið. Að fá næga hreyfingu, borða hollan mat og hvíla sig hjálpar okkur við að takast á við daginn og vera heilbrigð. Öll getum við lent í því að verða veik endrum og sinnum. Þá getum við í flestum tilvikum leitað til foreldra okkar með það sem hrjáir okkur og þau hjúkra okkur og styðja í veikindunum. Stundum líður okkur illa án þess að vita af hverju. Og stundum finnst okkur bara lífið vera erfitt. Það getur verið erfitt að vakna á morgnana, fara í skólann og taka þátt í hinu og þessu sem í boði er. Þá er mikilvægt að geta talað við einhvern og fengið hjálp.

Ef þér líður illa og finnst lífið erfitt þá skaltu ekki hika við að tala við einhvern. Oft er gott að byrja á því að tala við foreldrana en stundum finnst okkur óþægilegt að tala við þau um það sem hrjáir okkur og viljum frekar tala við einhvern utanaðkomandi. Það er hægt að leita á marga staði. Til dæmis að tala við skólahjúkrunarfræðing, námsráðgjafa eða kennara, leita á heilsugæslustöðvar og fleira.