Barnaheill - Save the Children á Íslandi eru hluti af alþjóðasamtökunum Save the Children sem eru stærstu alþjóðlegu frjálsu félagasamtök sem starfa í þágu barna í heiminum. Alþjóðasamtökin voru stofnuð árið 1919 og vinna nú að verkefnum í um 120 löndum. Á síðustu rúmlega 100 árum hafa alþjóðasamtök Barnaheilla – Save the Children breytt lífi yfir 1 milljarðs barna.

Alþjóðastarf Barnaheilla skiptist annars vegar í þróunaraðstoð og hins vegar neyðaraðstoð. Neyðaraðstoð Barnaheilla snýst að mestu leyti að viðbrögðum við neyð í kjölfar náttúruhamfara eða hamfara af mannavöldum. Með þróunaraðstoð veita Barnaheill aðstoð til fátækustu ríkja heims þar sem er lögð áhersla á almenna velferð á grundvelli mannréttinda.

Í hjálparstarfinu gæta Barnaheill – Save the Children sérstaklega að velferð barna en börn þurfa sérstaka vernd á tímum hamfara og átaka. Samtökin leggja áherslu á að grunnmenntun barna verði hluti af neyðaraðstoð, ekki síst á átakasvæðum þar sem neyðarástand hefur ríkt í langan tíma.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi vinna náið með alþjóðasamtökunum Barnaheilla - Save the Children um mótun stefnu og starfshátta. Starfsmenn samtakanna eru í miklum samskiptum við starfsmenn alþjóðaskrifstofunnar, sem staðsett er í London. Einnig vinna Barnaheill náið með staðbundnum skrifstofum í þeim löndum sem samtökin veita aðstoð í.