Vörunr. VV0068a

Teppi fyrir fjögur börn

Verðm/vsk
3.500 kr.
Nafn Teppi fyrir fjögur börn - gjafakort
Verð
Verðm/vsk
3.890 kr.
Birgðir 946
Hvernig viltu fá gjafabréfið afhent?
Fá útprentað gjafakort sent heim að dyrum.

Nafn Teppi fyrir fjögur börn - PDF
Verð
Verðm/vsk
3.500 kr.
Birgðir 258
Hvernig viltu fá gjafabréfið afhent?
PDF skjal í tölvupósti

Verðm/vsk
3.500 kr.

Mjúk teppi umvefja nýbura og lítil börn á átakasvæðum eins og í Úkraínu og Sýrlandi og taka þannig hlýlega á móti litlum krílum. Við þekkjum það vel hér á landi að það er nauðsynlegt að geta veitt hlýju þegar úti er kalt. Þörfin er enn meiri hjá litlum börnum sem fæðast inn í erfiðar aðstæður á svæðum þar sem átök hafa geisað. Ungbarnateppi er því góð gjöf sem getur skipt sköpum. 

Með þessari gjöf leggur þú þitt af mörkum til baráttu Barnaheilla – Save the Children til að stuðla að því að öll börn geti vaxið úr grasi við öryggi, heilbrigði og menntun.


Lilia* fæddist í Za'atari flóttamannabúðunum sem liggja við landamæri Sýrlands. Þar er mjög kalt á veturna og hitastigið getur farið undir frostmark. Í Za'atari flóttamannabúðunum búa börn og fjölskyldur þeirra ekki í upphituðu húsnæði heldur köldum tjöldum. Teppi taka hlýlega á móti nýburum eins og Liliu sem fæðist inn í erfiðar aðstæður. 

*nafni hefur verið breytt

 

 

 

 


Þú getur valið að fá Heillakort prentað á þykkan pappír sent heim með umslagi fyrir 390 kr. aukalega.

Það fá allir sent veglegt gjafakort í tölvupósti þegar Heillagjöf er keypt. Hægt er að prenta út skjalið, sem er í A4 stærð.