Vörunr. VV1010

Lyklakippa Verndara barna

Verðm/vsk
3.000 kr.
Verðm/vsk
3.000 kr.

Umhverfisvænar lyklakippur til styrktar forvörnum gegn kynferðisofbeldi á börnum

 

Vorsöfnun Barnaheilla fer fram dagana 28. apríl - 7. maí.  Allur ágóði sölunnar rennur til Verndara barna, forvarnaverkefnis Barnaheilla gegn kynferðisofbeldi á börnum.  Verndarar barna er fræðsla, þar sem fullorðnir fá leiðbeiningar um hvernig hægt sé að koma í veg fyrir kynferðisofbeldi, þekkja vísbendingar um að ofbeldi eigi sér stað eða að möguleiki sé á því að brotið verði á börnum kynferðislega. Auk þess er fjallað um æskileg viðbrögð við því.

Þetta er í fjórtánda sinn sem fjáröflunin fer fram en hefð hefur verið fyrir því að selja ljós í formi lyklakippu. Í ár bregða Barnaheill út af vananum og selja lyklakippur sem handgerðar eru af listafólki í Síerra Leóne.  Lyklakippurnar voru hannaðar af Hönnuh Samura, listakonu sem starfar á Lumley Beach art craft market í Freertown höfuðborg Sierra Leóne.  Hún ásamt 17 öðrum handgerðu lyklakippurnar og tók framleiðslan um 4 mánuði. Þau fengu laun sem samsvaraði árslaunum fyrir vinnu sína. 

Með kaupum á lyklakippunni er því ekki eingöngu stutt við forvarnir gegn kynferðisofbeldi á börnum heldur einnig er verið að valdefla og styðja við einstaklinga sem búa við kröpp kjör og þeim gefinn kostur á öruggara lífi.

Hér má sjá hluta þeirra sem framleiddu lyklakippurnar fyrir Barnaheill. 

Frá vinstri: Jenneh Momoh, Baindu Amara, Jurna Lahai (male, behind), Adama Lahai, Hannah Samura, Isatu Mansaray, Massah Dukalay

Nánar um vorsöfnun Barnaheilla má finna hér