Áfram einelti

Höfundur er Linda Hrönn Þórisdóttir 
Leiðtogi innlendra verkefna hjá Barnaheillum – Save the Childr…
Höfundur er Linda Hrönn Þórisdóttir
Leiðtogi innlendra verkefna hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi

Nei, ofangreind fyrirsögn er ekki hvatning til þess að leggja áfram í einelti. Hins vegar vísar hún frekar til þess að enn erum við, árið 2022, að fá fregnir af alvarlegum afleiðingum eineltis. Með sífellt meiri þekkingu, umræðum og rannsóknum á þessum málaflokki, skimunarlistum og viðbragðsáætlunum, hefði nú bara verið fínt að búið væri að útrýma einelti úr mannlegum samskiptum. En þannig er það því miður ekki.

Reglulega fáum við fregnir af börnum og ungmennum sem lögð eru í einelti og með tilkomu samfélagsmiðla er vandinn orðinn flóknari. Einelti sem áður takmarkaðist við skóla eða frístundir er orðið alltumlykjandi, jafnvel á eigin heimilum sem ætti að vera griðarstaður og skjól. Allt vegna þess að rafrænt einelti fylgir börnunum hvert sem er. Þó einelti hafi líklega fylgt okkur mannskepnunni frá fyrstu tíð þá er ekki þar með sagt að við eigum að leggja blessun okkar yfir það að einelti sé eðlilegur þáttur í samskiptum fólks. Með aukinni þekkingu okkar og rannsóknum eigum við ekki að sætta okkur áfram við það að einhver sé lagður í einelti. Það er ekki lögmál sem við eigum að taka sem gefnu að velta fyrir okkur hver ætli verði sá óheppni að vera lagður í einelti.

En hvernig stendur á því að þrátt fyrir aukna meðvitund sé einelti enn til staðar í barnahópum? Máltakið Börnin læra það sem fyrir þeim er haft á enn við. Við fullorðna fólkið erum fyrirmyndirnar. Allt sem við segjum og allt sem við gerum hefur áhrif þegar börn eru að fóta sig áfram í hinni viðkvæmu jafnvægislist sem mannleg samskipti eru. Ef við ætlumst til þess að börn beri virðingu fyrir öðrum, þá þurfum við að bera virðingu fyrir þeim. Ef við ætlumst til þess að börn sýni öðrum umburðarlyndi þá þurfum við sjálf að vera umburðarlynd. Og ef við ætlumst til þess að börn hafi góð samskipti á samfélagsmiðlum þá þurfum við líka að gjöra svo vel að gera það sjálf.

Við fullorðna fólkið berum ábyrgð á hvernig samskiptin eru í barnahópum. Börnin eru sett í aðstæður sem þau hafa takmarkað um að segja. Áður var litið á einelti sem einstaklingsbundinn vanda þar sem leitast var við að finna sökudólga og fórnarlömb en með aukinni þekkingu og vitund er nú vitað að einelti er menningarlegt og samfélagslegt mein. Skoða þarf menninguna og samskiptin í hópnum og breyta þeim. Ef eingöngu er leitast við að einblína á gerendur og þolendur þá breytist ekki neitt. Það er ekki ráðist að rót vandans og börnin fara á milli mismunandi hlutverka í hópnum. Menningin þarf ætíð að vera þannig að allir séu metnir af eigin verðleikum en þurfa ekki að breyta einhverju í eigin fari til að falla í hópinn. Það er hugmyndafræðin á bak við Vináttu – forvarnaverkefni Barnaheilla gegn einelti sem notast er við í fjölmörgum leik- og grunnskólum landsins.

Skilaboðin á Degi gegn einelti eru því þessi: Hvernig fyrirmyndir erum við fullorðna fólkið í samskiptum? Hvernig bregðumst við sjálf við mótlæti? Og ekki síst; erum við sjálf helstu styrktaraðilarnir og hrópum áfram einelti með framkomu okkar og viðbrögðum?