Afríkudagar í janúar

Ein af myndum Páls Stefánssonar ljósmyndara sem seld verður á þöglu uppboði til styrktar menntunarverkefni Barnaheilla - Save the Children á Íslandi í Norður-Úganda.Markmiðið með Afríkudögunum er að vekja athygli á málefnum Afríku og afla fjár til stuðnings menntunarverkefni Barnaheilla – Save the Children á Íslandi í Pader-héraði Norður-Úganda. Páll Stefánsson gefur t.a.m. ljósmyndir sínar sem seldar verða á uppboði í lok daganna.

Myndirnar, sem eru alls 25, eru afrakstur heimsókna Páls til Afríku á síðustu árum. Þær draga upp heillandi og litríka mynd af þeirri fjölbreytni og þeim krafti sem einkennir Afríku og gefa nýja og jákvæðari sýn á daglegt líf Afríkubúa. Myndirnar voru fyrr á þessu ári sýndar í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í tengslum við Afríkudaginn auk sem þær birtast, ásamt fjölda annarra mynda í bókinni, Áfram Afríka. Þær voru einnig til sýnis í sýningarsal KSÍ í Laugardal sl. sumar. Þögult uppboð verður á myndunum 28. janúar nk. í húsakynnum Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Tvær málstofur verða haldnar á Afríkudögum.

Sú fyrri ber yfirskriftina „Samstarf Íslendinga við Úganda“ og er haldin í samvinnu við kennslufræði- og lýðheilsudeild Háskólskólans í Reykjvík og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Sú síðari verður í Háskólanum Íslands og er yfirskrift hennar „Kynning rannsókna í Afríku sunnan Sahara“. Málstofan er haldin í samvinnu við MARK – Miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Bíó Paradís mun bjóða upp á myndir um lífið í Gíneu-Bissá. Um er að ræða myndir Sigurðar Grímssonar og Angeliku Andrees „Frá Bijagoseyjum – Lífið á Canhabaque“ og „Börn á Bijagoseyjunum“. Þá verður sýnd mynd Dúa J. Landmark, „Landið sem gleymdist“.Börn og unglingar á höfuðborgarsvæðinu munu einnig reyna að setja sig í spor ungviðis í Afríku með margvíslegum hætti í vikunni. Börn í 6. flokk Breiðabliks hafa að undanförnu glímt við það verkefni að búa til fótbolta sem þau munu svo æfa með, án hefðbundins skóbúnaðar. Þá mun 8. bekkur Snælandsskóla í Kópavogi velta fyrir sér fjarlægðum.Þættirnir Til allra átta, Hringsól og Víðsjá á Rás 1 verða helgaðir Afríku í vikunni.

Áhugamenn um tónlist og menningu þessa svæðis eru hvattir til að leggja við eyru. Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa styrkt við menntunarverkefni í Norður-Úganda frá árinu 2007. Það miðar að því að auka skólaaðgang og bæta gæði menntunar meira en 30 þúsund barna í héraðinu fram til ársins 2012. Þúsundir þeirra dvelja eða hafa dvalið í flóttamannabúðum eftir 20 ára stríðsátök á svæðinu. Sérstök áhersla er lögð á að ná til barna, sem ekki eru í skóla og þá sérstaklega til stúlkna, að bæta kennsluaðferðir og kennsluumhverfi, að styðja menntayfirvöld í því að efla menntun og vernda börn á átakasvæðum gegn ofbeldi og misnotkun.

Fyrir fjármagn frá samtökunum hafa verið byggðir skólar og kennarabústaðir með allri nauðsynlegri aðstöðu. Haldin hafa verið þjálfunarnámskeið fyrir kennara og skólayfirvöld og haldnir fræðslufundir með skólafólki, foreldrum og fleirum um réttindi barna. Sömuleiðis hafa verið námskeið fyrir börn til að fræða þau um réttindi sín og virkja þau til að taka þátt í skólastarfi og uppbyggingu samfélagsins. Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa skuldbundið sig til að styðja við menntunarverkefnið í Norður-Úganda til loka ársins 2012.

Áhugamannafélagið Afríka 20:20 leggur áherslu á að skapa vettvang fyrir frjóa umræðu um málefni Afríku sunnan Sahara og vekja á þeim athygli. Samtökin leggja jafnframt áherslu á mannréttindi og umburðarlyndi í samskiptum.Dagskrá Afríkudaga í janúar 2011.Málstofur Afríkudaga í janúar 2011.