Afrískar kvikmyndir í Bíó Paradís

Í tilefni af átaksverkefninu, Þróunarsamvinna ber ávöxt, hafa Afríka 20:20, félag áhugamanna um málefni Afríku sunnan Sahara og Bíó Paradís tekið höndum saman um sýningu á þremur afrískum kvikmyndum helgina 21. – 23. september nk. Hér er á ferð einstakt tækifæri til að kynna sér afríska kvikmyndagerð.

Í tilefni af átaksverkefninu, Þróunarsamvinna ber ávöxt, hafa Afríka 20:20, félag áhugamanna um málefni Afríku sunnan Sahara og Bíó Paradís tekið höndum saman um sýningu á þremur afrískum kvikmyndum helgina 21. – 23. september nk. Hér er á ferð einstakt tækifæri til að kynna sér afríska kvikmyndagerð.

Nú stendur yfir sameiginleg kynning frjálsra félagasamtaka á Íslandi og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands á málefnum þróunarlanda en áherslan í ár er á ójöfnuð í heiminum. Undirtitill átaksins er „Komum heiminum í lag“ en markmiðið með því  er að vekja Íslendinga betur til vitundar um samfélagslegar og siðferðilegar skyldur þjóðarinnar í baráttunni gegn fátækt, vannæringu og ójöfnuði í heiminum

Afríka 20:20 í samstarfi við Bíó Paradís bjóða af þessu tilefni upp á afríska kvikmyndahelgi dagana 21. – 23. september. Sýndar verðar þrjár myndir, Viva Riva! frá árinu 2010, Bamako frá árinu 2006 og 14 Kilometres frá árinu 2008. Myndirnar verða aðeins sýndar þessa helgi og því eru um að gera að nýta sér þetta einstaka tækifæri til að kynna sér afríska kvikmyndagerð.

 

Viva Riva! eftir Djo Tunda Wa Munga frá Kongó gerist þar í landi. Það ríkir bensínskortur og smákrimmi kemst yfir magn af eldsneyti sem hann ætlar sér að græða á. En fleiri hafa áhuga að taka þátt og gengjastríð geysar um eldsneytið með hefndum, fjárkúgunum og mannránum. Myndin hlaut verðlaun í Torontó árið 2010, MTV og í Nígeríu árið 2011.

 

Bamako eftir Abderrahmane Sissako frá Malí. Myndin gerist í Bamako höfuðborg Malí og er háðsádeila um hlutverk alþjóðastofnana í Afríku. Par í vonlitlu hjónabandi fylgist með réttarhöldum þar sem spurt er um neikvæð áhrif alþjóðastofnana á hagkerfi fátæku landanna. Myndin hlaut verðlaun í Istanbúl árið 2007.

 

14 Kilometres er eftir hinn spænska Gerardo Olivares. Hér er á ferðinni dramatísk vegamynd um ungt fólk frá Afríku sem dreymir um betri heim í Evrópu. Það ferðast í gegnum eyðimörkina en lokahnykkurinn á ferðalagi þeirra eru 14 kílómetrar yfir Gíbraltarsundið. Ung kona frá Malí, sem flýr skipulagt hjónaband sitt við eldri mann, og