APRÍL – al­þjóð­legur mánuður gegn of­beldi á börnum

Þennan mánuðinn, líkt og alla aðra mánuði ársins, hvetja Barnaheill – Save the Children á Íslandi einstaklinga, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök til að taka þátt í að gera Ísland að betri, ofbeldislausum, stað fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Það er hægt að gera með því að tryggja að foreldrar hafi þá þekkingu, færni og bjargir sem þeir þurfa til að vernda börn sín.

Samkvæmt nýlegri skýrslu Barnaverndarstofu fjölgaði tilkynningum til barnaverndarnefnda á fyrstu þremur mánuðum ársins 2020 um 9,5% miðað við árið á undan. Í upphafi Covid-19 faraldursins eru hins vegar vísbendingar um að tilkynningum til barnaverndarnefnda hafi snarfækkað. Ein af ástæðum þess getur verið sú að fleiri börnum er nú haldið heima sökum smithættu og sækja því ekki skóla en skólar og stofnanir eru helstu tilkynningaraðilar til barnaverndar. Þó benda tölur frá Barnavernd Reykjavíkur til þess að það sé aukning á ný í fjölda tilkynninga og þá frá nágrönnum og öðrum aðilum í umhverfi barna.

Nú er tækifæri fyrir samfélagið allt að kynna sér hvað er hægt að gera til að fyrirbyggja ofbeldi á börnum. Hafa þarf í huga hvernig hægt sé að hlúa að barni sem mögulega býr við ofbeldi og hvenær mikilvægt er að tilkynna grun um ofbeldi gegn barni til barnaverndarnefnda.

Með forvarnaverkefninu Verndarar barna, vilja Barnaheill, vekja athygli á málaflokknum og veita foreldrum og öðrum aðgang að upplýsingum og efni til að meta hvort hægt sé að bæta umhverfi barna og fyrirbyggja þannig ofbeldi á börnum.

Til að vernda börn frá ofbeldi er gott að spyrja sig spurninga um hvort að aðstæður og umhverfi barna séu örugg.

• Hvernig get ég komið í veg fyrir að kynferðisofbeldi eigi sér stað í minni fjölskyldu?

• Hvað þarf ég til að tryggja að barnið mitt sé öruggt?

• Ert þú með öryggisáætlun fyrir þína fjölskyldu?

• Ég fæ ónotatilfinningu gagnvart ákveðnum aðila, en hvað ef ég hef rangt fyrir mér?

• Þarf að kenna börnum með fötlun um kynheilbrigði?

• Hvernig get ég kynnt mér forvarnir gegn kynferðisofbeldi á börnum?

• Hvernig getur skólinn minn verið í forystu í forvörnum?

• Hvað getum við gert þegar utanaðkomandi ógnir (Covid-19) breyta okkar daglegum venjum?

Viltu vita meira? Svör við spurningunum er að finna á barnaheill.is.

Í sameiningu getum við með fyrirbyggjandi leiðum komið í veg fyrir ofbeldi og vanrækslu innan fjölskyldna og samfélagsins alls. Við hvetjum þig til að deila þekkingu þinni um forvarnir með ættingjum, vinum og samfélaginu öllu.

Höfundur er sálfræðingur og verkefnastjóri innlendra verkefna hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi.

 

 

Greinin birtist í Fréttablaðinu á Vísi 16. apríl 2020

https://www.visir.is/g/2020148914d/april-al-thjod-legur-manudur-gegn-of-beldi-a-bornum