Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra hlýtur Viðurkenningu Barnaheilla

F.v. Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, Hr. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Ás…
F.v. Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, Hr. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra og Harpa Rut Hilmarsdóttir, stjórnarformaður Barnaheilla.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra hlaut í dag Viðurkenningu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi árið 2021 fyrir störf í þágu breytinga í málaflokkum barna og ungmenna. Ásmundur Einar hefur í embætti félags- og barnamálaráðherra sett málefni barna í fyrsta sæti svo um munar. Hann lagði fram fjögur frumvörp auk þingsályktunartillögu í málefnum barna fyrr á þessu ári sem samþykkt voru á Alþingi sem hafa þau í för með sér gjörbyltingu í málefnum barna og ungmenna. Börnin eru í brennidepli og öll þjónusta og kerfin í kringum börnin mun vera samþætt og öllum hindrunum rutt úr vegi.

Samhliða þessum stóru breytingum hafa ýmis verkfæri verið þróuð til að styðja við þessa nýju nálgun og hugsun í málefnum barna. Má þar nefna mælaborð sem safnar og greinir tölfræðigögn til að kalla fram betri mynd af stöðu barna í samfélaginu og hvaða verkefni er brýnt að takast á við og forgangsraða.

Barnaheill veita árlega viðurkenningu fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra í tengslum við afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember. Viðurkenningin er afhent til að vekja athygli á Barnasáttmálanum og mikilvægi þess að íslenskt samfélag standi vörð um mannréttindi barna. Barnasáttmálinn er leiðarljós í öllu starfi Barnaheilla.

Afhending viðurkenningarinnar fór fram í veislusal veitingastaðarins Nauthóls og var streymt á netinu.

Harpa Rut Hilmarsdóttir, formaður Barnaheilla, flutti ávarp og tilkynnti hver hlyti viðurkenninguna. Herra Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, flutti ávarp og afhenti viðurkenninguna. Elsa Margrét Þórðardóttir, nemandi í Öldutúnsskóla flutti ávarp fyrir hönd ungmenna og Oscar Dagur Hernandez Aronsson, nemandi í Klettaskóla flutti frumsamið ljóð. Guðmundur Steingrímsson fyrrverandi stjórnarmaður í stjórn Barnaheilla stýrði athöfninni.