Barnaheill og KSÍ í samstarf

Barnaheill – Save the Children á Íslandi og KSÍ munu á þessu ári hefja tveggja ára samstarf um fræðsluverkefnið Verndarar barna með það að markmiði að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi gegn börnum, þekkja einkenni ofbeldis og læra að bregðast við.

Frá og með næsta hausti mun sérfræðingur frá Barnaheillum heimsækja knattspyrnufélög um allt land. Bundnar eru miklar vonir við þátttöku félaganna og er markmið KSÍ og Barnaheilla að í lok samstarfsins hafi öll aðildarfélög KSÍ fengið heimsókn og fræðslu. Unnið er að útfærslu og skipulagi verkefnisins og á næstu vikum mun KSÍ senda nánari upplýsingar á öll aðildarfélög. Heimsóknin og fræðslan er aðildarfélögum KSÍ að kostnaðarlausu.

Barnaheill fagna samstarfinu og hlakka til komandi tíma.

Hér má lesa tilkynningu KSÍ í heild sinni