Niðurstöður barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna kynntar

drengur-les-barnasttmlanNiðurstöður barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna vegna framkvæmdar Íslands á barnasáttmála S.þ. verða kynntar á morgunverðarfundi á morgun, fimmtudaginn 17. nóvember á Kornhlöðulofti Lækjarbrekku. Fundurinn hefst kl. 8.45 og stendur til 10.30. Fulltrúi Barnaheilla - Save the Children á Íslandi, ásamt fulltrúum Mannréttindaskrifstofu Íslands og Barnahjálpar S.þ. - UNICEF á Íslandi, taka þátt í fundinum sem er öllum opinn.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi, Mannréttindaskrifstofa Íslands og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna - UNICEF á Íslandi, sendu barnaréttarnefnd Sameinuðu skuggaskýrslu um stöðu barna á Íslandi með tilliti til ákvæða barnasáttmálans meðan á rannsókn nefndarinnar stóð. Til hliðsjónar var þriðja skýrsla íslenskra stjórnvalda til nefndarinnar. Megin niðurstöður skuggaskýrslunnar voru að þó hér á landi hafi verið samþykktar ýmsar aðgerðaráætlanir í málefnum barna hefur aðeins lítill hluti þeirra verið framkvæmdur.

Í lok september, sat sendinefnd Íslands fyrir svörum um framkvæmd barnasáttmála S.þ. á Íslandi. Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra, fór fyrir sendinefndinni og flutti inngangsorð við fyrirtökuna. Auk hennar voru fulltrúar Íslands þau María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur í innanríkisráðuneytinu, Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, Guðni Olgeirsson, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Margrét Björnsdóttir, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu. Einnig sat fundinn Veturliði Stefánsson, fulltrúi fastanefndar Íslands í Genf.

Dagskrá fundarins á morguni:

8.50 - 9.30: Sendinefnd Íslands segir frá undirbúningi og framkvæmd fyrirtökunnar, helstu niðurstöðum og því hvernig stjórnvöld hyggjast fylgja tillögum nefndarinnar eftir.
9.30 - 10.00: Umboðsmaður barna og fulltrúar Mannréttindaskrifstofu Íslands, Barnaheilla og UNICEF segja frá aðkomu sinni og sýn í tengslum við fyrirtökuna.
10.00 - 10.30: Umræður.

Kynningin er öllum opin. Boðið verður uppá léttar kaffiveitingar.