Börn í neyð þurfa aukna aðstoð

Ný skýrsla frá Barnaheillum - Save the Children, Still unprotected: Humanitarian Funding for Child protection, greinir frá því að neyðaraðstoð til að styðja við börn er gríðarlega undirfjármögnuð. Vegna kórónuveirufaraldursins hafa aðstæður barna út um allan heim versnað gífurlega, þá sérstaklega meðal barna sem búa á átakasvæðum, flóttabarna, fylgdarlausra barna og annarra barna sem nauðsynlega þurfa á vernd að halda. Vegna faraldursins þurfa börn og fjölskyldur þeirra að þola margvíslegar hremmingar, skólum hefur verið lokað og milljónum fjölskyldna hefur verið ýtt út í fátækt. Mikill fjöldi barna á í hættu á að verða fyrir mansali, barnaþrælkun eða vera neydd í hjónabönd vegna faraldursins.

Í skýrslunni er lögð áhersla á að nauðsynlegt er að finna leiðir til þess að fjármagna barnavernd. Áætlað er að framlög þurfi að tvöfaldast til að ná að sinna öllum þeim börnum sem hafa verið eða eiga á hættu að verða fyrir ofbeldi, misnotkun eða vanrækslu.

Skýrslan setur fram ítarlega greiningu á Viðbragðsáætlun vegna mannúðarmála og flóttafólks frá árinu 2019 (Humanitarian Response Plans and Refugee Response Plans from 2019). Einungis 2% af heildarfjármagni til mannúðarmála það árið, var úthlutað til barnaverndar. Í skýrslunni segir að


frá því að kórónuveirufaraldurinn hefur brotist út hefur börnum sem þurfa vernd í heiminum fjölgað. Börn eru einn af berskjölduðustu hópunum sem nauðsynlegt er að styðja við. Vegna undirfjármögnunar deyr fjöldi barna daglega, verður fyrir ofbeldi, misnotkun, fórnarlömb mansals eða býr við mikla vanrækslu. Bjargirnar til að vernda þau eru ekki til staðar vegna þess hversu litlu fjármagni er veitt í barnavernd.

Í skýrslunni er alþjóðasamfélagið hvatt til að bregðast við neyð barna og veita aukið fjármagn til barnaverndar. Auk þess sem hvatt er til þess að fjárfesta í stuðningi við innviði nærsamfélaga til að tryggja að þau börn er búa á hættulegustu svæðum jarðar séu vernduð.