Ef okkur er ekki sama um framtíð barnanna....

Í tilefni af loftslagsráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna. Þá drepum við á bílvélinni þegar bíllinn er í lausagangi, því það er óþarfi að brenna meira jarðefenaeldsneyti en þörf krefur.

MJR_500xÍ tilefni af loftslagsráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna

Þá drepum við á bílvélinni þegar bíllinn er í lausagangi, því það er óþarfi að brenna meira jarðefenaeldsneyti en þörf krefur.

Þá hjólum við, göngum og notum almenningssamgöngur eins og kostur er.

Þá minnkum við neyslu, því af flest allri framleiðslu og flutningi hlýst mengun.

Þá minnkum við sóun og erum nýtin, því við flest alla förgun er notað jarðefnaeldsneyti.

Þá kaupum við vörur sem eru framleiddar nálægt heimabyggð okkar og hafa ekki ferðast um langan veg, því það sparar eldsneyti.

Þá endurnotum við, endurýtum og flokkum allt sorp, því það er betra að nýta hráefni aftur og aftur í stað þess að taka nýtt úr auðlindum jarðar.

Þá hugsum við til barnanna okkar í öllum gjörðum okkar, því framtíðin er þeirra.

Ein helsta ógn barnanna okkar eru loftslagsbreytingar og megin orsakavaldur þeirra er brennsla á jarðefnaeldsneyti, svo sem olíu. Ef ekki verða tafarlausar breytingar munu börnin okkar og börn framtíðarinnar þurfa að klást við eitt stærsta verkefni sem nokkur kynslóð hefur þurft að klást við; alvarlegar afleiðingar loftslagsbreytinga. Börn, ekki síst á hinum fátækari svæðum heims, munu missa heimili sín vegna hækkunar sjávarborðs, börn þurfa að klást við auknar sveiflur í veðurfari og aukinn hita, íslensk börn þurfa jafnvel að standa frammi fyrir þeim veruleika með fjölskyldum sínum að Ísland verði ekki byggilegt sökum áhrifa loftlagsbreytinga á hafstrauma og fiskimið.

Börnin okkar eiga rétt á því að við hugsum um þeirra hag og látum af eigingirni neysluhyggjunnar.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru mannréttindasamtök, sem vinna að réttindum og velferð barna með barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem leiðarljós í öllu starfi. Samtökin vilja að tryggt sé að öll heimsins börn í nútíð og framtíð njóti þeirra réttinda sem þeim ber samkvæmt Barnasáttmálanum. Mikilvægt er að stuðla að jafnrétti milli heimshluta og einnig milli kynslóða til að komandi kynslóðir geti notið réttinda sinna, búið við öryggi og vernd og uppfyllt þarfir sínar, ekki síður en núlífandi kynslóðir.

Til að jörðin verði áfram byggileg, þarf að nýta auðlindir með sjálfbærum hætti, minnka sóun, vinna gegn loftslagsbreytingum, vernda vistkerfi, vinna að jöfnuði í heiminum, gæta jafnræðis og uppræta fátækt. Jafnframt þarf að stunda lýðræðisleg vinnubrögð, efla &tho