„Ég vil tala um gleymdu börnin“

„Mikið öngþveiti er í litlu sveitaþorpi í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó þegar ég keyri í gegnum þorpið. Bílstjórinn minn hægir á bílnum og hlustar á mann sem hleypur til okkar. ,,Hann stal barni!“ hrópar hann og bendir á mótorhjól sem þýtur úr þorpinu. Mér er sagt að þetta sé því miður daglegt vandamál á þessu svæði,” segir Kolbrún Pálsdóttir, verkefnastjóri Barnaheilla.

Kolbrún er stödd í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó á vegum Barnaheilla – Save the Children á Íslandi þar sem við erum með þróunar- og mannúðarverkefni. Í austurhluta landsins er mikið mannúðarástand. Hér hefur stríð geisað í tæp 30 ár og hafa átökin stigmagnast á undanförnum mánuðum með ágengni vopnaðra vígahópa sem ætla sér að taka yfir borgir og bæi. „Mannréttindabrot eru framin um land allt og kynferðisofbeldi er beitt sem stríðsvopni. Börn eru gríðarlega berskjölduð fyrir átökunum en ítrekað hefur fjöldi barna verið drepinn eða þau beitt ofbeldi. Stríðið hefur oft verið nefnt Gleymda stríðið þar sem það hefur fengið litla alþjóðlega athygli,“ bendir hún á.

„Ég vil þó tala um gleymdu börnin. Börnin sem upplifa mannréttindarbrot á hverjum degi, alla daga. 80% barna undir 14 ára verða fyrir líkamlegu ofbeldi á heimili eða í skóla. Ein af hverjum þremur stúlkum er neydd í hjónaband fyrir 18 ára aldur og ein af hverjum fjórum stúlkum verður ólétt fyrir 18 ára. Á hverju ári neyðist fjöldi barna til að ganga til liðs við vígahópa og upplifa ofbeldi og átök frá fyrstu hendi,“ segir Kolbrún.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru með mjög öflug verkefni í austurhluta Kongó sem snúa að vernd gegn ofbeldi á börnum. Samtökin vinna meðal annars með götubörnum í borginni Goma, en þar búa 20.000 börn á götunni. Barnaheill aðstoða börn við að sameinast ættingjum og fá öruggt húsaskjól, veita börnum sálfræði stuðning og aðstoða þau við að hefja nám; bóklegt eða verklegt. „Verkefnið miðar vel og eru nokkrir unglingar, sem áður voru á götunni, farnir að stunda vinnu við þá verkgrein sem þeir völdu sér og þannig afla tekna,“ segir Kolbrún ánægð með þann árangur sem Götubarnaverkefni Barnaheilla skilar þar í landi.

Í Kongó eru 113 milljónir manna, þar af eru 25 milljónir í brýnni nauðsyn fyrir mannúðaraðstoð. „Ég átta mig á því að það er erfitt að aðstoða alla. En við getum öll gert eitthvað. Hjálpumst að og verndum gleymdu börnin.“

Hægt er að styðja við starf Barnaheilla með því að gerast Heillavinur, mánaðarlegur styrktaraðili.