Barnaheill fordæma árásir sem bitna á börnum

Sprengjum hefur rignt yfir Kiev höfuðborg Úkraínu síðastliðinn sólahring. Þar á meðal lenti ein sprenging á leikvöll sem er 1 kílómeter frá skrifstofu Barnaheilla Í Úkraínu. ,,Við fundum jörðina skjálfa,“ sagði starfsmaður Barnaheilla í Úkraínu.

,,Fréttamyndirnar sem okkur hafa borist frá Kiev þar sem leikvellir barna hafa verið sprengdir upp eru óhuganlegar og sýna okkur börnin eru hvergi hult þegar kemur stríði. Skilaboð Barnaheilla – Save the Children á Íslandi eru einföld: Ekki sprengja börn! Við hjá Barnaheillum styðjum við börn í neyð víðsvegar um heiminn með því safna í viðbragðssjóð alþjóðasamtaka Barnaheilla. Þeir fjármunir nýtast meðal annars til styðja við börn í Úkraínu,” segir Ellen Calmon framkvæmdastýra Barnaheilla um neyðarsöfnun Barnaheilla. 

Á undanförnum dögum hefur fjöldi hjálparstofnana neyðst til stöðva starfssemi sína í Úkraínu vegna öryggisógnar starfsfólks. Í borgunum Kyiv, Lviv, Ternopil og Dnipro hefur rignt sprengjum og hafa minnsta kosti 11 almennir borgarar látið lífið og 89 særst. Heimili, skólar, göngubrýr og leikvellir hafa orðið fyrir sprengjum og mikið tjón hefur orðið á innviðum sem hefur leitt til ragmagnsleysis og truflana á vatni. fer kólna í Úkraínu og hafa þessar árásir áhrif á undirbúning heimilanna fyrir veturinn sem getur reynst kaldur.

Barnaheill krefjast þess alþjóðleg mannúðarlög séu virt til þess vernda börn gegn átökum. Árásir sem þessar stríða gegn alþjóðlegum stríðslögum.

 

Neyðarsöfnun Barnaheilla

 

Skóli í Kyiv sem var sprengdur upp af Rússum