Every Last Child - ný herferð gegn ójöfnuði

Barnaheill – Save the Children fagna í dag nýrri alþjóðlegri herferð sem miðar að því að eyða ójöfnuði í mennta- og heilbrigðismálum svo öll börn geti notið réttinda sinna.

Every Last Child campaignBarnaheill – Save the Children fagna í dag nýrri alþjóðlegri herferð sem miðar að því að eyða ójöfnuði í mennta- og heilbrigðismálum svo öll börn geti notið réttinda sinna.

Fjórir af hverjum tíu fullorðnum í heiminum segjast hafa þjáðst vegna mismununar sem þeir upplifðu sem börn, samkvæmt nýrri skýrslu samtakanna sem einnig kom út í dag. Mismununin var byggð á kyni, kynþætti, trú, fötlun eða  vegna búsetu.

Reynsla hjálparstofnana sýnir að milljónum fátækustu barna í heiminum er neitað um lífsnauðsynlega þjónustu vegna þess hver þau eru og hvar þau búa.

Vegna þessa segir næstum helmingur þátttakenda í könnuninni að aðgengi að menntun hafi verið verulega skert vegna þessara aðstæðna og rúmlega þriðjungur segist ekki hafa átt möguleika á að fá lífsnauðsynlega heilbrigðisaðstoð.

Rúmlega 18 þúsund manns um allan heim tóku þátt í rannsókninni, sem er sú stærsta af þessari tegund sem samtökin hafa ráðist í og tekur í fyrsta sinn á afleiðingum mismununar barna varðandi framtíðarmöguleika þeirra í lífinu.

Mismunun er vaxandi vandamál á heimsvísu samkvæmt skýrslunni sem meðal annars leiddi í ljós:

  • 56% þátttakenda segja að á síðustu 20 árum hafi mismunun gegn börnum ekki minnkað í heimalandi þeirra. 36% sögðu að hún hafi aukist.
  • Í Afríku upplifðu 58% þátttakenda mismunun í æsku.
  • Næstum helmingur allra sem tóku þátt í Asíu, 45%, segja að þeir hafi upplifað mismunun sem börn.

Niðurstöðurnar styðja síðustu skýrslu samtakanna sem leiddi í ljós að þótt árangur hefði náðst í að ná til fátækustu barna heims, er litið framhjá þeim hópum sem lenda í mestri mismunun, þrátt fyrir að þeir séu viðkvæmastir og framtíðarhorfur þeirra fari stöðugt versnandi.

Þessi börn lenda í mismunun vegna þeirra svæða sem þau búa á, vegna kyns eða kynþáttar, fötlunar eða stríðsástands.

Helstu niðurstöður skýrslunnar er að finna hér.